Stóru málin fóru yfir kosningaúrslitin og ræddu aftur við Völvu þáttarins, sem var eiginlega með allt rangt, nema Sjálfstæðisflokkinn. Enda alltaf verið sterkari í hinum myrku öflum en þeim ljósari.
Þá kom í ljós að transkonan Seth hafði sett sig í samband við Bjartmar sem kenndi vinum sínum um að hafa ónáðað þá ágætu fröken, og þykir okkur það ansi leitt. Þá fórum við yfir athyglisvert samband Sigmundar Davíðs við Ingu Sæland, auk þess sem við reyndum að greina flóknari þræði sambands Sigmundar og Bjarna Benediktssonar. Án árangurs, auðvitað, enda gjörsamlega hugmyndasnauðir menn.