Hertar aðgerðir gegn þeim sem flakka milli landa með Netflix-aðganginn sinn og græjur frá Kína eru meðal þess sem Gunnlaugur Reynir og Andri Valur ræða í Tæknivarpinu þessa vikuna. Sérlegur gestur þáttarins er Atli Thor Fanndal blaðamaður. Þá er meðal annars rætt um vefverslanir og reynslu af þeim.
Græjur sem rætt var um: Xiaomi Pistons 3 heyrnatól , Xiaomi ferðarafhlaða, One Plus 2, One Plus X, QCY QY8 þráðlaus heyrnatól.