Pétur Jónsson (@senordonpedro), tónlistarframleiðandi og guðfaðir íslenska Twitter-samfélagsins er í heimsókn hjá Gunnlaugi Reyni og Andra Val í Tæknivarpinu. Þeir fjalla um svarleysi annarra fjarskiptafyrirtækja við nýrri verðskrá 365 og Error 53 sem stútar Apple-símum um allan heim. Er þetta alvöru vandamál eða stormur í vatnsglasi? Einnig var fjallað um Twitting-hittinginn sem var nýlega á KEX og slæma stöðu Twitter-fyrirtækisins.
Meira handa þér frá Kjarnanum