Gunnlaugur Reynir, Andri Valur og Atli Stefán fengu til sín Sverri Björgvinsson, hjá Einstein.is, til að ræða nýjustu útgáfur og uppfærslur frá Apple. Þeir hittust allir á mánudaginn og fylgdust með Apple-viðburðinum þar sem bandaríski tölvurisinn kynnti nýjustu uppfærslur á snjalltækjunum sínum. Þar bar hæst ný útgáfa af iPhone sem kölluð verður SE. Þá kynnti Apple uppfærslu á iPad Pro og á stýrikerfinu fyrir snjalltækin iOS.