Í þætti vikunnar fá þeir Gunnlaugur, Andri og Atli Frey Hólm Ketilsson, nýsköpunarstjóra Vodafone, í heimsókn. Meðal umfjöllunarefnis er innkoma NOVA á ljósleiðaramarkaðinn, uppfært app 365, þróunarútgáfa af Holo Lens og verðlagningu á iPhone SE. Gunnlaugur Reynir gaf svo sitt álit á Samsung Galxy S7 sem Tæknivarpið hefur verið að prófa síðustu vikur.
Að lokum sagði Freyr Hólm frá Stökkpallinum, nýsköpunarkeppni sem Vodafone og Startup Iceland standa að.
Umsjónarmenn eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Andri Valur Ívarsson og Atli Stefán Yngvason.