Tæknivarpið varpar sér sýndarveruleikann og ræðir við Stefaníu G. Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra CCP á Íslandi. CCP hlaut tilnefningu til Bafta-verðlauna á dögunum fyrir EVE online-tölvuleikinn í flokki varanlegra leikja (e. Persistent Games).
Stefanía er nýkomin heim af Game Developer Conference sem haldin var í San Francisco í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Þar kynntu stærstu hugbúnaðar- og tölvuframleiðendur heims sínar nýjustu vörur og tól í þróun.
Sýndarveruleiki, CCP, EVE online og sýndarveruleikatölvuleikurinn Sparc frá CCP eru til umfjöllunar í Tæknivarpinu. Umsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson og Jón Heiðar Þorsteinsson.