Bandaríski tölvuframleiðandinn Apple hefur beðist afsökunar á ruslatunnulögun Mac Pro-tölvunar sem sett var á markað árið 2013. Jafnvel þó að hönnun tölvunar hafi vakið athygli vegna nýstárlegra hugmynda þá reyndist þríhyrningslaga form tölvunnar sjálfrar (sem var þannig í laginu til þess að hámarka kæligetu) útiloka allar uppfærslur á vélbúnaðinum. Það hefur ekki farið vel í trygga Mac Pro-notendur.
Apple hefur þess vegna lækkað verðið á 2013 árgerð tölvunnar og lofað betrumbótum á næstu útgáfu í vörulínunni.
Tæknivarpið ræðir Apple og margt fleira í þessum 99. þætti Tæknivarpsins í hlaðvarpi Kjarnans. Gestur þáttarins er doktor Helga Ingimundardóttir en umsjónarmenn eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Andri Valur Ívarsson og Atli Stefán Yngvason.
Í öðrum og ótengdum Apple-fréttum er að segja af bandaríska tónlistarmanninum Jay Z sem hóf að eyða tónlistinni sinni út af tónlistarstreymisveitum Apple Music og Spotify í vikunni. Enn er hægt að nálgast tónlistina hans á Tidal, streymisveitunni sem Jay Z á sjálfur.