Tæknivarpið ræddi Snapchat Spectacles og iPhone X í þætti dagsins. Spectacles frá Snap Inc. seldust vel er þau komu fyrst á markað, en eftirspurnin dalaði fljótt.
Nýjasta afurð Apple er líka rædd, iPhone X, en samkvæmt nýjustu fréttum þá er fyrirtækið að lækka gæðakröfur sínar varðandi Face ID, arftaka Touch ID, vegna örðugleika í framleiðslu. Forsala á iPhone X hefst víða um heim í dag.