Í Tæknivarpinu þessa vikuna fóru þeir Gunnlaugur, Atli og Andri út um víðan völl. Miklar breytingar verða á greiðsluþjónustum á næstu árum. Síminn Pay er lausn en hvaða vandamál leysir hún í raun og veru? Hvaða aðrar þjónustur eru komnar eða á leiðinni. Einnig fjölluðu þeir um Sonos og Apple Home Pod.
Umsjónarmenn eru Gunnlaugur Reynir, Andri Valur og Atli Stefán.