Í Tæknivarpinu þessa vikuna fóru þeir Gunnlaugur, Andri og Sverrir yfir tæknifréttir síðustu viku. Nýtt AUR app var kynnt í gær undir slagorðinu „segðu bless við bankann þinn.“ Stenst það?
Einnig ræddu þeir svartan föstudag og netverslun almennt, öryggisgalla á Mac OS og margt fleira.
Umsjónarmenn eru Gunnlaugur Reynir, Andri Valur og Sverrir Björgvins.