Nýju Surface-spjaldtölvunar frá Microsoft eru með utanáliggjandi lyklaborði og þeim fylgir kápa með borðstandi. Það hefur Microsoft-spjaldtölvan fram yfir iPad-tölvurnar frá Apple. Tæknivarpið fjallar um nýjungar frá og fyrir Microsoft þessa vikuna.
Umsjónarmenn þáttarins þessa vikuna eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Andri Valur Ívarsson og Atli Jarl Martin. Atli Jarl er nýkominn heim af IFA-ráðstefnunni þar sem hann kynnti sér meðal annars nýjungar frá helstu tæknifyrirtækjum í heimi.