Instagram er orðið stærra en Twitter meðal netverja samkvæmt tilkynningu frá Instagram í vikunni. Nú eru 300 milljónir reikninga virkir á Instagram og á hverjum degi senda þeir 70 milljón myndir á vefinn. Tæknivarpið tekur á þessum gríðarlega vexti Instagram ásamt því að snerta á lokunum á Pirate Bay. Þetta og margt fleira. Umsjónarmenn þáttarins þessa vikuna eru Gunnlaugur Reynir, Bjarni Ben, Atli Stefán og Andri Valur.
iOS eða æOS. Hvort er rétt að segja? https://t.co/WXHOlgV1eH
— Simon.is (@simon_is) December 10, 2014
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Svo má fylgjast með Símon.is á Twitter, Facebook og á Simon.is.