Íslenski tölvuleikurinn Aaru's Awakening fæst nú gefins fyrir áskrifendur Play Station Plus og þeir sem ekki eru í áskrift geta keypt leikin í Play Station-búðinni á 14,99 dollara. Íslenska sprotafyrirtækið Lumenox hefur þróað leikin síðustu þrjú ár og fékk þetta stóra tækifæri á dögunum. Umsjónarmenn þessa afmælisþáttar eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Atli Stefán Yngvason og Bjarni Ben.
Þá er HBO Now, sem Tæknivarpið fjallaði um í síðasta mánuði, til umfjöllunar en það er nú komið í Apple TV. „Þetta er náttúrlega Rolls-inn í bandarísku sjónvarpi,“ fullyrðir Gunnlaugur Reynir. Þeir félagar ræða svo nýja snjallsíma og prófanir á þeim.
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða í hlaðvarpsstraumi Kjarnans. Svo má fylgjast með Símon.is á Twitter, Facebook og á Simon.is.