Vitundarvarpið – Fyrsti þáttur

Í fyrsta þætti Vit­und­ar­varps­ins fær Eva Bald­urs til sín jóga­kennar­ann og heil­ar­ann Ágústu Kol­brúnu Roberts. Ágústa lifir mjög heilsu­sam­legu og heil­næmu lífi og lifir í flæði. Ágústa talar um sitt ferða­lag, hvað það er að vera í teng­ingu, hvernig hennar taktur er. Eva og Ágústa ræða um and­lega vakn­ingu, fyrra líf Ágústu sem risa­eðla, fíkn­ir, sam­bönd, yoga­fræði, mýkt­ina og kær­leik­ann og allt milli him­ins og jarð­ar.

Í vit­und­ar­varp­inu fær Eva Bald­urs­dóttir til sín góða gesti í opnar og ein­lægar sam­ræður um and­lega þátt til­ver­unn­ar. Allt er undir og skyggst er inn í líf áhuga­verðra ein­stak­linga sem eru á and­legri braut í heimi rök­hyggj­unn­ar. Þátt­ur­inn er hann­aður til að hjálpa hlust­endum að vakna til vit­und­ar, vera besta útgáfan af sjálfum sér og kom­ast dýpri teng­ingu við umheim­inn. 

Mál­efnin eru af marg­vís­legum toga. Í þætt­inum er fjallað um hvað sé með­vitað líf og hvernig megi ná meiri full­næg­ingu í sínu dag­lega lífi. Mikil áhersla verður lögð á með­vit­und um þátt hugs­ana og til­finn­inga. Fjallað er um ást­ina, vel­gengni, til­gang­inn, vinn­una, fíkn­ir, sam­skipti, sam­bönd, trú, ást­ina, ham­ingju, mið­ils­gáfu og hug­myndir um önnur líf. Kostir hug­leiðslu, jóga, heil­un­ar, líf­ræns matar­æð­is, hreyf­ing­ar, minimal­isma og öll önnur mál­efni nýald­ar­fræð­innar til að bæta lífs­gæði verða tekin fyr­ir. Þá verður rætt um stöðu sam­fé­lags­ins, hraða, upp­setn­ingu þess, stjórn­mál og svo fram­veg­is. Gestir þátt­ar­ins munu miðla sínum sann­leik og veita inn­sýn inn í þeirra per­sónu­legu vakn­ingu.

Vaknið - með Kjarn­anum og Evu Bald­urs.

Kjarn­inn í sam­­­­­­­starfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þús­undir hljóð­­­­­­­bóka í sím­­­­­­­anum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.­­­­­­­storyt­el.is/kjarn­inn og byrja að njóta. Storyt­el.is, þús­undir hljóð­­­­­­­bóka í sím­­­­­­­anum þín­­­­­­­um.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023