Sérstakur saksóknari
Auglýsing

Upp­gjörið við hið ein­staka íslenska banka­hrun, þar sem stærstur hluti banka­kerfis þjóð­ar­innar féll eins og spila­borg dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008, er nú rekið í mörgum málum fyrir dóm­stól­um. Hæsti­réttur hefur sak­fellt í sex stórum hrun­málum af þeim sjö sem inn á borð hans hafa kom­ið, en sýknað var í hinu svo­kall­aða Vafn­ings­máli. Þungir dómar hafa fall­ið, enda upp­hæð­irnar sem um ræðir algjör­lega án for­dæma í íslenskri rétt­ar­sög­u. 

Í gær féll dómur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í hinu svo­kall­aða Stím-­máli þar sem Lárus Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitn­is, Jóhannes Bald­urs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta Glitn­is, og Þor­valdur Lúð­vík Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Sögu Capital, voru dæmdir sek­ir. Lárus fékk fimm ára dóm, Jóhannes tveggja ára og Þor­valdur Lúð­vík átján mán­aða.



Lík­legt má telja að þessum dómum verði áfrýjað til Hæsta­rétt­ar, og hefur einn þeirra dæmdu, Þor­valdur Lúð­vík, þegar gefið það út.



Eitt í þessu máli er athygl­is­vert og mikið umhugs­un­ar­efni. Magnús Pálmi Örn­ólfs­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Glitnis og yfir­maður eigin við­skipta bank­ans, er einn tveggja manna sem hefur fengið rétt­ar­vernd gegn ákæru þar sem fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar benda til þess að þeir hafi brotið af sér, gegn því að veita sak­sókn­ara upp­lýs­ingar sem styrki mála­til­búnað hans. Rétt­ar­verndin byggir á svo­nefndu upp­ljóstr­ar­a­á­kvæði í lögum frá árinu 2008.



Í dómi hér­aðs­dóms er á það bent að Magnús Pálmi hafi við fyrstu yfir­heyrslur í mál­inu sagt, að hann hefði einn tekið ákvörðun um kaup á skulda­bréfi Sögu Capital, sem eru lyk­il­við­skipti í mál­inu. Síðan breytir hann fram­burði sín­um. Í dómnum segir um þetta: „Líta verður til þess að á því stigi hafði lög­regla kynnt honum gögn sem þóttu leiða í ljós sekt [Magn­úsar Pálma]. Á því stigi hafði lög­reglan jafn­framt kynnt honum þá til­gátu að til hafi komið þrýst­ingur frá yfir­manni hans um að sam­þykkja kaup­in. Svo sem hér greinir hefur [Magnús Pálmi] orðið missaga undir með­förum máls­ins. Dóm­ur­inn telur að skoða verði fram­burð [Magn­úsar Pálma] í þessu ljósi sem og sönn­un­ar­gildi fram­burðar hans."



Þetta er það sem er umhugs­un­ar­efni yfir­leitt í dóms­mál­u­m. 

Hvenær er hægt að leyfa mönnum að semja sig frá ákærum? Þetta eru alvar­leg mál, og ljóst er í þessu til­tekna máli, að Magnús Pálmi er inn í hringa­miðju ákvarð­ana og kemur að þeim bein­t. 



Það hlýtur að vera afar við­kvæmt í málum sem þessum - og reyndar í dóms­málum yfir­leitt - að geta komið sér undan rétt­vís­inni. Allir verða að vera jafnir fyrir lög­un­um, er rétt­ar­heim­speki sem er grund­vall­ar­at­riði í rétt­ar­ríki. Þegar menn koma sér undan ákærum með samn­ingum við sak­sókn­ara, þá er byrjað að feta afar við­kvæma braut, svo ekki sé fastar að orði kveð­ið. 



Sá sem þetta skrifar telur að þetta eigi ekki að vera hægt, það er að afbrota­menn geti samið sig frá ákærum, enda á eitt yfir alla að ganga þegar alvar­leg brot eru rann­sökuð og þeim síðan skotið inn á borð dóm­stóla. Þeir meta svo hvað er rétt og rangt, miðað við lag­anna bók­staf.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None