Húsnæði, aðgengi og mannréttindi fatlaðs fólks

Fasteignir hús
Auglýsing

Á Alþing­i eru nú til með­ferðar laga­frum­vörp varð­andi hús­næð­is­mál og þá hefur umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytið kynnt til­lögur að breyt­ingum á bygg­ing­ar­reglu­gerð.

Mark­mið ­með þessum frum­vörpum og breyt­ingum á bygg­ing­ar­reglum er m.a. að auka fram­boð á hús­næði fyrir tekju­lágt fólk og að draga úr bygg­ing­ar­kostn­aði.

Það eru auð­vitað góð mark­mið en þó er ýmis­legt sem huga þarf vel að og annað sem verður sér­stak­lega að var­ast.

Auglýsing

Í lögum um mál­efni fatl­aðs fólks er því lýst yfir að tryggja skuli fötl­uðu fólki „jafn­rétt­i og sam­bæri­leg lífs­kjör við aðra þjóð­fé­lags­þegna og skapa því skil­yrði til þess að lifa eðli­legu líf­i.“ Tæki­færi fatl­aðs fólks til sjálf­stæðs og eðli­legs lífs og sam­bæri­legra lífs­kjara á við aðra eru aug­ljós­lega órjúf­an­lega tengd mögu­leikum þess til að ­eign­ast eigið heim­ili.

Heim­il­ið nýtur sér­stakrar frið­helgi sam­kvæmt íslensku stjórn­ar­skránni og ­mann­rétt­inda­samn­ingum sem íslensk stjórn­völd hafa und­ir­geng­ist. Sá sem ekki á heim­ili fer á mis við þau mann­rétt­indi. Tæki­færi fatl­aðs fólks til jafns við aðra er meg­in­mark­mið samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks sem ­ís­lensk stjórn­völd hafa lýst yfir að þau ætli að upp­fylla með lög­um, reglum og ­stjórn­sýslu­fram­kvæmd. Samn­ing­ur­inn leggur mikla skyldu á ríki til að gera við­eig­and­i ráð­staf­an­ir, m.a. með lögum og regl­um, til að greiða fyrir aðgengi fatl­aðs ­fólks á öllum sviðum og ekki síst að hús­næði.

Tekjur fatl­aðs fólks og geta til að greiða ­fyrir hús­næði

Ein­stak­ling­ur ­sem vegna fötl­unar á ekki mögu­leika á að afla sér atvinnu­tekna hefur nú um 185 ­þús. kr. á mán­uði í ráð­stöf­un­ar­tekj­ur, eftir skatt, og rúmar 207 þús. kr. ef hann býr einn. Hafi fatl­aður ein­stak­lingur verið í þeirri ­stöðu frá fæð­ingu eða barns­aldri eru það, að öðru óbreyttu, þær tekjur sem hann þarf að láta duga fyrir allri fram­færslu sinni, þ.m.t. kostn­aði vegna leigu eða ­kaupa á hús­næði, öll sín full­orð­ins­ár.

Mat á nauð­syn­legu rými og aðstæðum í í­búðum þar sem fatlað fólk býr

Ýmis útbún­að­ur­ ­sem er nauð­syn­legur fólki vegna fötl­unar tekur oft mikið pláss. Þá þarf fatl­að ­fólk oft á miklum stuðn­ingi að halda á heim­ili sínu við athafnir dag­legs lífs og þarf þá að gera ráð fyrir rými sem aðstoð­ar­fólk þarf að hafa. Við mat á því hver er þörf fatl­aðra ein­stak­linga fyrir rými og aðstæður í íbúðum þar sem þeir ­búa er því nauð­syn­legt að tekið sé fullt til­lit til þessa sem og þess við­bót­ar­kostn­aðar sem af þessu leið­ir.

Fatl­að ­fólk dvelst almennt meira á heim­ilum sínum en þeir sem ófatl­aðir eru. Það má því full­yrða að lífs­gæði fatl­aðs fólks séu almennt enn háð­ari því hús­næði sem það býr í en þegar um ófatlað fólk er að ræða.

Íbúð ­sem fatl­aður ein­stak­lingur flyst í verður oft heim­ili hans til langs tíma og ­jafn­vel ævi­langt. Þarfir og kröfur sem geta átt við um bygg­ingu hús­næðis sem ætlað er fólki að búa í um tak­mark­aðan tíma, s.s. náms­manna­í­búð­ir, eiga því alls ekki við um hús­næði sem ætlað er fötl­uðu fólki.

Aðgengi að íbúð­ar­hús­næði

Aðgengi fatl­aðs fólks að íbúð­ar­hús­næði snýst alls ekki bara um íbúðir þar sem það býr. Mögu­leikar til­ eðli­legs lífs, þ.m.t. tæki­færi til þátt­töku í félags­lífi og afþr­ey­ingu sem fram ­fer á heim­ilum fólks ráð­ast aug­ljós­lega alfarið af því að fatlað fólk get­i heim­sótt annað fólk þar sem það býr sem og að því að það geti athafnað sig þar ­með eðli­legum hætti og notað sal­erni án þess að því fylgi óþægi­lega mik­ið um­stang.

Fatlað barn, svo dæmi sé tek­ið, sem þarf að nota hjóla­stól getur ekki farið í afmæli þó að því sé ­boðið í það ásamt bekkj­ar­fé­lögum sín­um, sem fram fer í íbúð afmæl­is­barns­ins ­nema aðgengi sé tryggt að íbúð­inni og það geti notað sal­ernið þar. Og háskóla­nem­i ­sem þarf að nota hjóla­stól getur ekki verið með þegar skóla­fé­lagar hans hittast heima hjá einum þeirra til að búa sig undir próf ef aðgengi að íbúð­inni er ó­full­nægj­andi eða að sal­ern­inu þar.  

Loka­orð

Breyt­ingar á reglum sem ­geta leitt til að fatlað fólk verði að láta sér lynda enn verra hús­næði en því býðst nú sem og breyt­ingar á reglum sem tor­velda aðgengi fatl­aðs fólks að ­í­búð­ar­hús­næði frá því sem er sam­kvæmt gild­andi reglum er mikil aft­ur­för sem fer í bága við mark­mið laga um mál­efni fatl­aðs fólks og meg­in­reglur og mark­mið ­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. Slíkar breyt­ingar eru alls ekki í anda sam­fé­lags án aðgrein­ingar og draga úr líkum á að unnt verð­i að „tryggja ­fötl­uðu fólki jafn­rétti og sam­bæri­leg lífs­kjör við aðra þjóð­fé­lags­þegna og ­skapa því skil­yrði til þess að lifa eðli­legu líf­i“, eins og íslensk stjórn­völd hafa skuld­bundið sig til að gera og hafa lýst yfir og sett í lög.

Lands­sam­tök­in ­Þroska­hjálp skora á alþing­is­menn og stjórn­völd að gæta mjög vel að þeim skyld­um ­sem þau hafa sam­kvæmt lögum og mann­rétt­inda­samn­ingum til að „tryggja fötl­uð­u ­fólki jafn­rétti og sam­bæri­leg lífs­kjör við aðra þjóð­fé­lags­þegna og skapa því skil­yrði til þess að lifa eðli­legu lífi“ Þegar þau setja lög og reglur á svið­i hús­næð­is- og bygg­ing­ar­mála.

Höf­undar ertu for­maður og fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­tak­anna Þroska­hjálp­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None