Aukastjórnarfundur Samtaka atvinnulífsins

Auglýsing

And­rúms­loftið í myrku bak­her­berg­in­u er mettað von­brigðum og vindla­reyk svo auð­menn­irnir sjá varla ístru hvor­s ann­ars út um ein­gl­yrn­in. „Ég trúi þessu ekki!“ stynur Einar Auð­vald og ber viskíglas­inu í tekk­við­ar­borðið þannig það slett­ist upp úr því. „Við gef­um verka­skrílnum rúm­lega helm­ing­inn af verð­bólg­unni í launa­hækk­anir og fáum svo þessa tusku í and­litið frá ein­hverjum fokk­ans þing­mönn­um!“ segir hann og klár­ar úr glas­inu.

Kor­mákur Kap­ítal teygir sig í karöfl­una og hellir sér þre­faldan í krist­al­inn, losar um bind­is­hnút­inn og hnepp­ir frá efstu tölu skyrtunn­ar. „Hvernig dirfast þeir???“ öskrar hann nötr­andi af bræði svo svita­perlurnar skoppa af efri vör­inni. „ÞRJÁ­TÍUOG­FIMM TÍMA VINNU­VIKA! Það vita allir að við eigum að semja lög um vinnu­mark­að­inn og senda til­ Al­þing­is, ekki öfugt.“

„Hvar halda þeir eig­in­lega að þeir ­búi? Í Nor­rænu vel­ferð­ar­rík­i?“ spyr stjórn­ar­maður og hring­borðið skellir upp úr svo pípu­hattar detta á gólfið og vindla­reyk­ur­inn hóst­ast út í loftið í hlátra­sköll­un­um. Annar skýtur inn: „Æj ég held þetta séu nýju komm­ún­ist­arnir á þingi, þess­ir þarna tölvunörd­ar. Þeir eru ekki ennþá búnir að læra inn á sam­komu­lagið okk­ar.“

Auglýsing

„Bara að maður hefði verið uppi á tímum iðn­bylt­ing­ar­inn­ar, fyrir tíma vinnu­lög­gjaf­ar,“ segir Jói dreym­inn á svip. „Þegar maður gat þrælað fólki út allan sól­ar­hring­inn og skipt því út ef það veikt­ist eða slas­að­ist.“ „Já, mun­iði líka eftir Kára­hnjúk­um? Það er bara ekki ­jafn auð­velt að leigja fólk af starfs­manna­leig­unum leng­ur. Svo verður örugg­lega ennþá meira skrifræði í kringum það eftir þetta vesen þarna í Vík. Fólk þarf að passa sig.“

Skyndi­lega heyr­ast þungir dynkir og ­stjórn­ar­mön­un­unum verður litið á Einar Auð­vald við enda borðs­ins þar sem hann hefur tekið sér fund­ar­ham­ar­inn í hönd og ber honum án afláts í antík­ina: „­Strák­ar! Við megum ekki missa okkur í nostal­g­íu. Það er aðkallandi mál á borð­inu og mik­il­vægt að kæfa þessa hug­mynd í fæð­ing­u,“ segir hann og strýk­ur svit­ann af enn­inu með hvít­hanska­klæddu hand­ar­bak­inu.

„Svenni, hafðu sam­band við PR-­gæj­ann og láttu skrifa frétta­til­kynn­ingu um að verði vinnu­vikan 35 tímar mun­i koma önnur kreppa, súrt regn, atvinnu­leysi og kett­lingar deyji umvörp­um. Segj­u­m líka að 40 stunda vinnu­vikan sé verk­færi Satans og bættu við ein­hverri snjall­ri ­mynd­lík­ingu um hjól atvinnu­lífs­ins. Jói þú talar við mark­aðs­deild­ina. Ég væri til í aðra sjón­varps­her­ferð eins og um dag­inn, með björtum lit­um, teikni­mynd­um, kökum og stórum pró­sent­um. Kor­mák­ur, þú bjallar í Björn Jón Braga­son og seg­ir honum um að leggja næsta Reykja­vík Viku­blað undir áróð­ur. Þetta gengur fyr­ir­ öllu öðru, Bjössi fær í mesta lagi eina síðu undir gömlu mennta­skóla­verk­efn­in sín. Ég skal hringja í ASÍ og segja þeim að allir líf­eyr­is­sjóð­irnir fari í fokk ef þeir taki ekki afstöðu með okk­ur.

Fundi er slit­ið“  

*Dúnk*

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None