Bréf Ungra jafnaðarmanna til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Eva Indriðadóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna
Eva Indriðadóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna
Auglýsing

Kæri Sig­urður Ingi,

Okkur í Ungum jafn­að­ar­mönnum langar að spyrja þig hvað sé flókið við að eiga pen­ing á Íslandi?

Við spyrjum af ein­skærri for­vitni, enda eigum við, líkt og flest ungt fólk á Íslandi, mjög lít­inn pen­ing. Okkar upp­lifun er nefni­lega frekar sú að það sé flókið að eign­ast pen­ing á Íslandi. Laun eru nefni­lega lág á Íslandi miðað við nágranna­lönd okk­ar, og kaup­máttur launa sömu­leið­is. Á Íslandi erum við með náms­lána­kerfi sem gerir ekki ráð fyrir neinum almennum styrkjum til stúd­enta (ólíkt öllum hinum Norð­ur­lönd­un­um), er með allt upp í 100% náms­fram­vindu­kröfur og tryggir náms­mönnum svo lága fram­færslu að ekki er hægt að lifa á henni nema að búa í ókeypis hús­næði. Reyni stúd­entar að vinna til að drýgja fram­færslu­lán­in, lækkar fram­færslan næstu önn vegna ósann­gjarns frí­tekju­marks. 

Auglýsing

Ef ungt fólk vill flytja út af Hótel Mömmu, stendur það frammi fyrir því vali að fest­ast í fátækt­ar­gildru leigu­mark­aðar eða – tak­ist því ein­hvern­vegin að nurla saman útborgun fyrir íbúð – skuld­binda sig til a.m.k. 40 ára til að borga íbúða­verðið u.þ.b. tvisvar og hálf sinnum með dýrum verð­tryggðum lán­um. Í nágranna­lönd­un­um, þar sem fólk býr við eðli­leg lána­kjör, er fólk nær því að borga íbúða­verð u.þ.b. einu og hálf sinn­um. Mis­mun­andi lána­kjör Íslend­inga og nágranna okkar verða þannig til þess að ungt fólk hér­lendis þarf að spyrja sig hvort búseta á Íslandi sé heillar íbúðar virð­i. 

Fyrir þau okkar sem langar þrátt fyrir allt að búa hér áfram, þá er það því nokkuð áhyggju­efni ef það er svo flókið að eiga pen­inga á Íslandi eins og þú segir að það sé. 

Það lítur nefni­lega þvert á móti út fyrir að það sé tölu­vert auð­velt að eiga fullt af pen­ing á Íslandi. Því virð­ast meira að segja fylgja ýmis for­rétt­indi, svo sem að geta tekið hag­stæð­ari lán, borgað fjár­magnstekju­skatt (20%) í stað tekju­skatts (a.m.k. 37%) og jafn­vel, ef maður er rosa rík­ur, geymt pen­ing­inn í skatta­skjólum erlend­is.

Við hlökkum til að heyra af flækj­unni sem þið mold­ríku ráða­menn eruð í út af öllum pen­ing­unum sem þið þurfið að burð­ast með.

Ungir jafn­að­ar­menn

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None