Hræðilegur samningur við Alcoa

Ál
Auglýsing

Árs­fundur Lands­virkj­unar fór fram í gær, fjall­aði mbl.is um þar sem þar fór fram. Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, lét hafa eftir sér í við­tali við mbl.is, að raf­orku­verðs­samn­ingar sem gerðir voru við Norð­urál og Elkem væru „barn síns tíma“ og vitn­aði til þess að verðin væru lág, og stefnt væri að því Lands­virkjun fengi hærra verð þegar samn­ingar yrðu end­ur­nýj­aðir 2019. 

Lands­virkj­un ætlar eðli­lega að reyna að fá hærra verð fyrir raf­ork­una, og fá þannig meiri arð­semi út úr þessu mik­il­væga fyr­ir­tæki í eigu almenn­ings. 

Það má velta því fyrir sér, hvað kalla má samn­ing­ana sem gerðir voru við Alcoa árið 2002 til 40 ára, ef samn­ing­arnar við Norð­urál og Elkem eru barn síns tíma. Verðið sem Alcoa greiðir er lágt, eða svipað og Norð­urál greið­ir, en nú eru 32 ár eftir af samn­ingnum við Alcoa. Við­skipti hófust eftir að Kára­hnjúka­virkjun var til­búin 2007 og afhend­ing raf­magns gat haf­ist. 

Auglýsing

Alcoa notar meira en þriðj­ung af allri raf­orku sem Lands­virkjun fram­leið­ir, en í fyrra fékk Lands­virkjun 421 milljón Banda­ríkja­dali vegna raf­orku­sölu, eða sem nemur um 55 millj­örðum króna. 

Í ljósi þeirrar miklu eft­ir­spurn­ar, sem er eftir raf­orku á Íslandi um þessar mund­ir, eins og glögg­lega hefur komið fram í fram­sögum hjá Herð­i á und­an­förnum árum, þá verður að telj­ast með ólík­ind­um, að samið hafi verið um þetta lága verð til 40 ára. Þegar skrifað var undir var mikið rætt um að aukna eft­ir­spurn eftir vist­vænni orku, og fyr­ir­sján­legrar stefnu­breyt­ingar í orku­málum í heim­in­um. Það voru hags­mun­irnir sem íslensk stjórn­völd og Lands­virkjun þurftu að meta, þegar kom að þessum við­skipt­um.  Norð­menn hafa unnið heima­vinnu á þessu sviði vel, en ekki við Íslend­ingar eins vel.

Samn­ing­ur­inn við Alcoa virð­ist hafa verið gerður alfarið á grund­velli hags­muna Alcoa en ekki íslensks almenn­ings, sem ætti með réttu að fá mun hærra verð fyrir raf­ork­una, einkum í fram­tíð­inni þegar eft­ir­spurn eftir vist­vænni orku verður orðin mun meiri. Allt voru þetta fyr­ir­sján­leg atriði þegar samið var, og um þau rætt. Ekki er hægt að nota það sem rök, að nú sé allt breytt frá því sem áður var. Alþjóð­legar skuld­bind­ingar um aukna hlut­deild vist­vænna orku­gjafa voru þá þegar á borð­inu, og á þeim hefur vita­skuld verið skerpt enn frekar síð­an. Par­ís­ar­fund­ur­inn í des­em­ber síð­ast­liðnum markar síðan tíma­mót í þessum efn­um. 

Samn­ing­ur­inn við Alcoa var ekki bara „barn síns tíma“ heldur ein­fald­lega hræði­legur við­skipta­samn­ingur fyrir íslenskan almenn­ing, sé horft til langrar fram­tíð­ar. Stór hluti orku­auð­linda þjóð­ar­innar er bund­inn á lágu verði næstu 32 árin. Von­andi mun sá tími koma, að þessi samn­ings­gerð verði ræki­lega greind og kjörin borin saman við alþjóð­leg verð, og sett í sam­hengi við þróun mála. Það er mikil þörf á því. 

Þá er von­andi hægt að læra af mis­tök­un­um, ekki síst á sviði stjórn­mála­manna, þar sem þetta mál var keyrt áfram af miklu offorsi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None