Ekki láta valdið spilla þér

Jón Gunnar Borgþórsson
Auglýsing

Um dag­inn rakst ég á (til­tölu­lega) stutta grein í októ­ber­hefti HBR eft­ir Dacher Keltner sem ber heitið „Don´t Let Power Corr­upt You“.

Mér fannst eitt­hvað svo við­eig­andi að vekja athygli á henni og fara í stuttu máli yfir efni hennar – ekki síst þegar líður að því að fjöldi fólks muni á næst­unni kom­ast í valda­stöður í fyrsta sinn á Alþingi.

Í grein­inni seg­ist höf­und­ur­inn hafa komið auga á trufl­andi mynstur þau 20 ár sem hann hafi stundað hegð­un­ar­rann­sóknir (e. Behavioral res­e­arch).

Auglýsing

Þannig sé, að yfir­leitt öðlist fólk völd vegna per­sónu­ein­kenna og aðgerða sem miði að betri hag ann­arra (s.s. að setja sig í spor fólks, beita sam­ráði, gagn­sæi, heið­ar­leika og miðla upp­lýs­ing­um). Á sama tíma fari hins vegar að fara minna fyrir eig­in­leik­unum þegar fólk­inu finnst það öðl­ast völd eða kom­ast í for­rétt­inda­stöð­u. 

Þannig séu þau valda­meiri lík­legri til að við­hafa dóna­lega, sjálfselsku­lega og ósið­lega hegð­un. Þetta fyr­ir­brigði kallar hann „valda­þver­stæð­una“ (eða „-þver­sögn­ina“ – e. The power para­dox) og fram kemur að hann hafi rann­sakað birt­ingu mynsturs­ins við fjöl­breyttar aðstæður og nefnir nokkur dæmi.

Þá kemur það einnig fram að auður og virð­ing­ar­stöð­ur­/­próf­gráður (e. Credenti­als) hafi svipuð áhrif. M.a. hafi kann­anir í 27 löndum leitt í ljós að auð­ugir ein­stak­lingar séu lík­legri til að segja að það sé ásætt­an­legt að taka þátt í ósið­legri hegð­un, svo sem að þiggja mútur eða svíkja undan skatti.

Í grein­inni er þetta útli­stað frekar og afleið­ing­arnar sagðar geta verið víð­tæk­ar. Vald­beit­ing hafi nei­kvæð áhrif á orð­spor stjórn­enda og grafi þ.a.l. undan mögu­leikum þeirra til að hafa áhrif. Hún skapi einnig stress og áhyggjur hjá sam­starfs­fólki, dragi úr stöð­ug­leika, sköp­un­ar­gleði, þátt­töku og frammi­stöðu.

En hvernig er þá hægt að vinna gegn þessu?

Keltner bendir á tvö þrep í því sam­bandi. Hið fyrra sé að þróa sterk­ari sjálfs­með­vit­und (e. Sel­f-awareness) þ.e. að taka eftir og fylgj­ast með þeim til­finn­ingum sem vakna við að öðl­ast völd, en einnig breyt­ingu á eigin hegðun sem því fylg­ir. Upp­lifunin geti verið nán­ast manísk, en auð­veld­ara sé að hafa hemil á sér ef vit­undin er til stað­ar. Hann bendir á nokkrar leiðir til að takast á við það verk­efni.

Seinna þrepið felist í að halda áfram þeim sam­skipta­háttum sem komu við­kom­andi í valda­stöð­una og leggur hann þar áherslu á þrennt, þ.e. að geta sett sig í spor ann­arra, sýna þakk­læti og örlæti. Hann bendir einnig á nokkrar leiðir í því sam­bandi. Með því að iðka sið­ferð­is­lega hegðun sem ein­kenn­ist af þessum þremur þátt­um, megi koma í veg fyrir valda­þver­stæð­una.

Þannig sé hægt að kalla fram besta vinnu- og sam­starfsand­ann hjá þeim sem í kringum við­kom­andi eru. Sá sem í valda­stöð­unni er, nyti einnig góðs af hegð­un­inni í formi betra orð­spors, end­ing­ar­góðs leið­toga­hlut­verks og ekki síst „Dopa­min-­ríkrar“ gleði af því að vinna að hags­munum ann­arra.

Eiga þessi skila­boð ekki erindi til okkar núna?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None