Losaðu þig undan ofbeldinu

Auglýsing

Kæri kjós­andi!

Það er aldeilis búið að svíkja þig hressi­lega á þessu kjör­tíma­bili:

Í fyrsta lagi í  stjórn­ar­skrár­mál­inu, og það er búið að henda allri þeirri vinnu út á hafs­auga. Þar var nokkur hund­ruð millj­ónum hent bara sí svona.

Auglýsing

Það er búið að svíkja þig í Evr­ópu­mál­um, þú mátt sem sagt ekki greiða atkvæði um það hvort haldið verður áfram eða ekki og þar með settur ákveð­inn punktur í því máli. 

Það er alltaf verið að taka af þér val­kosti.

Skiptir engu þó 55.000 manns skrifi undir lista, bæði Fram­sókn og Sjálf­stæð­is­flokki er gjör­sam­lega skít­sama um und­ir­skrift þína. Þannig sýna þessir flokkar ást sína á lýð­ræð­inu.

Það er líka búið að svíkja þig um afnám verð­trygg­ing­ar­inn­ar, þess­arar ófreskju í íslensku efna­hags­lífi. Hún verður ekki afnumin á þessu kjör­tíma­bili, eins og dúdd­arnir Bjarni og Sig­mundur lof­uðu.

Það er alltaf verið að taka af þér val­kosti. Og það er alltaf verið að vernda sér­hags­mun­ina.

Með­ferðin á þér, kæri kjós­andi, má því líkja við mis­þyrm­ingu, eins og sparkað sé í liggj­andi mann, þann sem er veikur fyr­ir. En svo er þér dröslað sam­an, bara til þess eins að geta sparkað í þig aft­ur.

Hinn tví­höfða þurs, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn, vill atkvæðin þín til þess að sitja áfram við kjöt­katl­ana og völd­in, en þeir gefa þér svo fing­ur­inn þegar kemur að því að standa við þau lof­orð sem þeir gefa.

Kæri kjós­andi: Gefðu nú þessu rugli frí, los­aðu þig undan ofbeld­inu og próf­aðu eitt­hvað nýtt.

Mig langar að benda þér á að Dögun hyggst setja á fót sam­fé­lags­banka og stöðva spila­vít­is­starf­sem­ina í ,,þrí­bank­an­um". Dögun vill líka allan fisk á mark­að, svo að kvóta­kóng­arnir sitji ekki alls­staðar við öll borð­in, búi til brauð­mol­ana og hirði þá svo sjálf­ir.

Á heima­síðu Dög­unar má gefa að líta yfir­lit yfir öll stefnu­mál okkar og við bjóðum fram í öllum kjör­dæmum - líka þínu!

Höf­undur er í 3ja sæti Dög­unar í Krag­anum - Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None