Haldnir voru tveir fundir í borgarráði í liðinni viku eftir tveggja vikna hlé í kringum páska. Það kemur alltaf jafn mikið á óvart hvað páskafrí og fimmtudagsfrídagar þessa árstíma hafa mikil áhrif á hjól atvinnulífsins. Allt dettur í hægagang og vorstemming svífur yfir borginni og ekki laust við að eftir gott frí sé erfitt að koma sér í gang aftur. Nú er hinsvegar allt komið á fullt, heil vinnuvika fram undan og verkefnin á fleygiferð eins og sést í fjölmiðlum þessa dagana. Fjölmörg mál biðu afgreiðslu borgarráðs en það var gleðiefni að borgin skilaði rekstrarafgangi árið 2018, barnafjölskyldur fengu kjaraleiðréttingu, auk þess sem samningur milli Reykjavíkurborgar og Útlendingastofnunar um þjónustu við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar var samþykktur. Þau eru því drjúg vorverkin í borginni.
Ársreikningur borgarinnar
Ársreikningur borgarinnar var lagður fram í borgarráði. Rekstrarafgangur Reykjavíkurborgar nam 4,7 milljörðum króna árið 2018 og skilaði samstæða Reykjavíkurborgar, þ.e rekstur borgarinnar og fyrirtæki í eigu hennar, jákvæðri niðurstöðu upp á 12,3 milljarða króna. Við höfum lagt mikla áherslu undanfarið á framkvæmdir á vegum borgarinnar, þar sem við höfum forgangsraðað í þágu barna, því eftir hrun hefur verið uppsöfnum framkvæmdaþörf. Við höfum byggt skóla, leikskóla og framkvæmdir við íþróttaaðstöðu í Úlfarsárdal lýkur senn. Þá hófum við uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í Suður-Mjódd auk endurnýjun leikskóla- og skólalóða um alla borg. Það er ánægjulegt að sjá jafn góðan rekstrarafgang 2018 og raun ber vitni því á sama tíma var álagningarhlutfall fasteignagjalda lækkað um 10% auk þess að gefa eldri borgurum og öryrkjum sérafslátt á árinu, aðgerðir sem allir borgarbúar hafa notið góðs af. Á sama tíma höfum við einnig gert og höldum áfram að gera stórátak í malbikun gatna og lagningu nýrra hjólastíga sem skilar sér beint í auknum lífsgæðum þeirra sem eiga leið um borgina okkar.
Þó ársreikningurinn komi vel út fyrir árið 2018 eru teikn á lofti um breytingar í efnahagslífi Íslendinga. Það er mikilvægt að búa sig vel undir það og borgin hefur því látið greina möguleg áhrif þess á borgarreksturinn. Við verðum áfram á vaktinni hvað þetta varðar á komandi vikum og mánuðum. Við unnum ítarlega sviðsmyndagreiningu síðastliðið haust til vera klár í breytingar í efnahagslífinu og verð ég að segja að borgin stendur ágætlega að vígi til að mæta breyttum tímum. Við verðum að vera á tánum því það er okkur ávallt leiðarstef að fara vel með almannafé og ráðstafa því ætíð með þarfir borgarbúa að leiðarljósi.
Klofningur í Sjálfstæðisflokknum um samning um hælisleitendur
Samþykktur var í borgarráði samningur Reykjavíkurborgar og Útlendingastofnunar um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í þessum nýja samningi er kveðið á um þjónustu við 220 einstaklinga, fjölgun um tuttugu frá síðasta samningi. Frá árinu 2015 hefur verið aukning í fjölda einstaklinga en þá gerði samningurinn ráð fyrir 70 einstaklingum. Allir borgarráðsfulltrúar, fyrir utan Mörtu Guðjónsdóttur í Sjálfstæðiflokknum og Vigdísi Hauksdóttur, studdu bókunina. Enn og aftur sjáum við Miðflokksarm Sjálfstæðisflokks í borginni kljúfa sig frá í málefnum sem snúa að alþjóðamálum og fjölmenningu.
Eitt námsgjald fyrir barnafjölskyldur
Samþykktar voru reglur Reykjavíkurborgar sem snúa að leikskólum, frístund og félagsmiðstöðvum vegna breytinga sem tóku gildi um áramót þegar sú ákvörðun meirihlutans í Reykjavík tók gildi að barnafjölskyldur borga einungis námsgjald fyrir eitt barn, þvert á́ skólastig. Það hefur verið sérstakt metnaðarmál okkar að búa vel að barnafólki með því að halda gjaldtöku í lágmarki fyrir þá þjónustu sem barnafólk þarf að sækja til borgarinnar. Við fögnum því þessu mikilvæga skrefi sem hækkar systkinaafslætti þvert á skólastig, nú greiða foreldrar einungis námsgjald fyrir eitt barn en gjaldið fellur niður fyrir eldri systkini. Hér er mikið hagsmunamál á ferðinni fyrir fjölmargar barnafjölskyldur í borginni.
Einföldum kerfið
Einfalda, skýra, skarpa borg er yfirlýst markmið með þeim skipulagsbreytingum sem nú standa yfir hjá borginni. Lagt var fyrir borgarráð í vikunni tillögur að verkaskiptingu nýrra kjarnasviða og gengur öll vinna við undirbúning vel. Þetta er stór áfangi í vegferðinni að þessum stjórnsýslubreytingum og árangur þrotlausrar vinnu fjölmargra innan borgarinnar. Meira um málið hér.
Breytingarnar miða að því að skýra umboð og ábyrgð, einfalda boðleiðir og skerpa á hlutverki lykileininga í stjórnsýslu borgarinnar. Í nýju skipulagi eru innkaupamál tekin föstum tökum, hlutverk innkauparáðs útvíkkað og tryggt að öllum framkvæmdum sé fylgt vel eftir hvað varðar kostnaðaráætlanir, innkaup, útboð og fleira. Einnig verður þjónustu, nýsköpun, fjármálum, áhættustýringu og mannauði gert hærra undir höfði og stendur sú vinna yfir núna og mun taka gildi 1. júní nk. Hvað þýðir þetta? Einfaldlega það að þjónusta við borgarbúa mun batna og þeir sem leita til borgarinnar fá fyrr úrlausn mála sinna. Þetta þýðir að starfssemi borgarinnar verður mun skilvirkari en áður sem mun auka starfsánægju og þjónustustig til muna. Allir eru á einu máli um að grunn forsenda góðrar þjónustu sé starfsánægja þess sem sinnir þjónustunni.
Í vikunni voru samtals 66. mál fyrir borgarráðsfundinum og því fjölmargt ónefnt en fyrir áhugasama má fylgjast með helstu ákvörðunum borgarinnar hér.
https://reykjavik.is/fundargerdir-borgarrad
s
Höfundur er oddviti Viðreisnar og formaður borgarráðs.