Litlu fjölmiðlarnir með eldspýturnar

Óli Valur Pétursson skrifar um rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi og leggur til að ríkið skattleggi auglýsingatekjur hjá samfélagsmiðlum og af áskriftargjaldi og komi þannig á kerfi sem styður við fjölmiðla.

Auglýsing

Und­an­farnar vikur hefur mikið verið rætt um stöðu fjöl­miðla á Íslandi. Helstu dæmi má nefna stöðu N4 og ákall þeirra um að ríkið komi til móts við rekstur þeirra. Sú bar­átta gæti liðið undir lok um mán­að­ar­mótin þar sem N4 sér ekki fram á að halda áfram rekstri. Einnig má nefna sam­ein­ingu Stund­ar­innar og Kjarn­ans, en sjálf­bær rekstur er ein for­senda þeirrar sam­ein­ing­ar. Að lokum má nefna að nýverið til­kynnti Torg að Frétta­blað­inu yrði ekki lengur dreift inn á heim­ili fólks enda er kostn­að­ar­samt að bera blaðið út. Áætlað er að dreif­ing­ar­kostn­aður fyrir árið 2023 hefði getað verið í kringum einn millj­arð króna. Það getur verið erfitt að reka fjöl­miðil á Ísland­i. 

En afhverju er erfitt að reka fjöl­miðil á Íslandi? Flest spjót bein­ast að Rík­is­út­varp­inu. Félagið er á háum fram­lögum frá rík­inu og á aug­lýs­inga­mark­aði. Þing­menn, fjöl­miðlar og almenn­ingur benda alltaf á ein­föld­ustu lausn­ina að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði. Er það svarið við rekstr­ar­vanda fjöl­miðla? Ein­falda svarið er nei. Það sýndi sig bæði á Spáni og í Frakk­landi að það eitt að taka rík­is­miðl­ana af aug­lýs­inga­mark­aði skil­aði tekjum ekki til einka­rek­inna fjöl­miðla, heldur dróst mark­að­ur­inn sam­an. Þess má geta að Sam­band íslenskra aug­lýs­inga­stofa gagn­rýndi einmitt frum­varp nafna míns Óla Björns Kára­sonar um að taka Rík­is­út­varpið af aug­lýs­inga­mark­aði enda myndi það hafa nei­kvæð áhrif á starf­semi aug­lýs­inga­stofa.

Nýverið sat ég mál­þing um fram­tíð blaða­mennsku og svæð­is­bundna fjöl­miðlun í Háskól­anum á Akur­eyri. Þar kom meðal ann­ars fram að þegar svæðis­út­send­ingar Rík­is­út­varps­ins hættu á Aust­ur­landi hafi fjöl­miðlar á svæð­inu haldið að þá myndu aug­lýs­inga­tekjur skila sér til þeirra. En það var ekki raun­in, heldur dróst mark­að­ur­inn saman á svæð­inu og aug­lýs­ingar röt­uðu á sam­fé­lags­miðla. 

Auglýsing

Árið 2021 voru aug­lýs­inga­tekjur sam­fé­lags­miðla 9,5 millj­arð­ar, en það eru 43,5% allra aug­lýs­inga­tekna á Íslandi það árið. Skattur af þessum aug­lýs­inga­tekjum skilar sér ekki til rík­is­ins enda eru sam­fé­lags­miðlar ekki skatt­skyldir á Íslandi. Þarna gæti íslenska ríkið séð sér leik á borði með því að skatt­leggja aug­lýs­inga­tekjur hjá sam­fé­lags­miðlum og af áskrift­ar­gjaldi streym­isveitna. Gefið að tekju­skattur af aug­lýs­inga­tekjum sam­fé­lags­miðla sé um 22%, tökum svo þessa 9,5 millj­arða sem fóru í aug­lýs­ingar til sam­fé­lags­miðla. Þessar tekjur myndu skila rík­inu yfir tvo millj­arða í kass­ann. 

Þessi nýi tekju­stofn rík­is­ins gæti runnið í sjóð sem ég ætla leyfa mér að kalla „Fjöl­miðla- og menn­ing­ar­sjóð“. Með slíkum sjóði væri hægt að efla starf­semi Fjöl­miðla­nefndar eða hrein­lega efla starf­semi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi. Heild­ar­upp­hæð styrkja gæti verið hærri en þær 400 millj­ónir á ári sem nú er, og fjöl­miðlar á lands­byggð­inni gætu fengið væna sneið af þeirri köku. 

Þetta eru aðeins mínar hug­myndir hvernig væri hægt að koma á kerfi sem styður við fjöl­miðla á Íslandi. Fjöl­miðlar gegna lyk­il­hlut­verki í lýð­ræði sam­fé­lags­ins og er það mik­il­vægt að þeir legg­ist ekki af eða lendi í höndum fárra ein­stak­linga. Þess vegna tel ég mik­il­vægt að ríkið beiti sér í mál­efnum fjöl­miðla enda rekstr­ar­um­hverfið erfitt.  

Höf­undur er fjöl­miðla- og boð­skipta­fræð­ing­ur 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar