Með rýtinginn í erminni

000-Par6558011.jpg
Auglýsing

Hörð átök hafa und­an­farið geisað innan danska Ven­stre flokks­ins. Eitt dönsku blað­anna sagði nýverið að for­ystu­menn flokks­ins gangi með rýt­ing­inn í erminni, til­búnir að stinga hver annan þegar tæki­færi gefst. Allt er þó slétt og fellt á yfir­borð­inu.

Ven­stre (sem þrátt fyrir nafnið er hægri miðju­flokk­ur) er stærsti flokk­ur­inn á danska þing­inu, Fol­ket­in­get, með 47 þing­menn. Í kosn­ing­unum 15. sept­em­ber 2011 bætti flokk­ur­inn við sig einum þing­manni en vegna slakrar útkomu sam­starfs­flokk­anna tveggja missti stjórnin þing­meiri­hlut­ann og við tók rík­is­stjórn Helle Thorn­ing-Schmidt. Lars Lökke Rasmus­sen for­maður Ven­stre var, þrátt fyrir að vera nú kom­inn í stjórn­ar­and­stöðu, lang vin­sæl­asti stjórn­mála­maður Dan­merk­ur. Lykke Lökke köll­uðu sumir fjöl­miðlar hann. Hann var þó lítt áber­andi í stjórn­mála­um­ræð­unni og tók lít­inn þátt í störfum þings­ins, steig til dæmis ekki í pontu í þingsalnum í 692 daga sam­fellt.

„Allt tekur enda um síð­ir“ segir mál­tækið og það á sann­ar­lega við um hveiti­brauðs­daga Lökkes í stjórn­ar­and­stöð­unni og „hver hefur sinn djöful að draga“ passar kannski ekki síð­ur.

Auglýsing

Í fyrra­haust, tveimur árum eftir kosn­ingar var Lars Lökke dögum saman helsta umfjöll­un­ar­efni danskra fjöl­miðla. Ástæðan var for­mennska hans í sam­tökum sem styðja við efna­hags­upp­bygg­ingu í fátæk­ari löndum heims. Upp komst að sam­tök­in, sem eru meðal ann­ars fjár­mögnuð af danska rík­inu, höfðu borgað flug­miða og hót­elgist­ingu fyrir dóttur Lars Lökke. Fjöl­miðlar rifj­uðu upp eldri mál sem tengd­ust leigu­bíla­reikn­ing­um, gist­ingu mat og víni, nefndar voru upp­hæðir sem jafn­gilda tæpum 20 millj­ónum íslenskra króna. Lars Lökke hélt lengsta frétta­manna­fund í sögu Dan­merkur (stóð í þrjár og hálfa klukku­stund og sendur út í beinni sjón­varps­út­send­ingu) til að útskýra málið en frétta­menn og sjón­varps­á­horf­endur voru litlu nær.

Lars Lökke Rasmussen á fundi með blaða- og fréttamönnum. Lars Lökke Rasmus­sen á fundi með blaða- og frétta­mönn­um.

Flokk­ur­inn borg­aði föt og bíl       



Vart var öld­urnar farið að lægja vegna þess­arar umræðu þegar upp komst að Ven­stre flokk­ur­inn hafði borgað jakka­föt, skyrt­ur, skó og jafn­vel nær­föt fyrir flokks­for­mann­inn. Allt keypt í einni dýr­ustu verslun lands­ins og upp­hæð­irnar ( jafn­gildi rúm­lega þriggja millj­óna íslenskra króna) slíkar að mörgum blöskr­aði. Ýmsir framá­menn í flokknum báru blak af Lars Lökke og sögðu mik­il­vægt að for­mað­ur­inn kæmi vel fyr­ir, bæði á myndum og eins þegar hann væri út á meðal fólks. Sum dag­blað­anna gerðu grín að þessu fata­máli og sögðu að þrátt fyrir fata­reikn­ing­ana liti Lars Lökke alltaf út eins og hann hefði fengið lánuð eld­gömul jakka­föt af afa sín­um. Ekki skán­aði það þegar upp komst að flokk­ur­inn stóð straum af kostn­aði bíls og bíl­stjóra fyrir for­mann­inn og loks kom svo í ljós að hann bjó í láns­í­búð í mið­borg Kaup­manna­hafnar sem óljóst var hver bæri kostn­að­inn af.

Flokks­mönnum leist ekki á blik­una



Lengi vel hugg­aði for­ysta Ven­stre sig við skoð­ana­kann­an­irnar sem sýndu stöðugt fylgi flokks­ins og for­manns­ins. En þar varð skyndi­lega breyt­ing á síð­ast­liðið vor. Flokk­ur­inn hélt sínu fylgi en vin­sældir for­manns­ins hrundu og nán­ast eins og hendi væri veifað var Lars Lökke orð­inn óvin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins. Flokks­for­ystan klór­aði sér í koll­in­um, aðeins rúm­lega ár til kosn­inga. Fram til þessa hafði eng­inn látið sér til hugar koma að hrófla við for­mann­inum en nú fóru ýmsir að hugsa sitt. Þar á meðal vara­for­maður flokks­ins, Krist­ian Jen­sen.

Örlaga­dag­ur­inn 3. júní 2014



Flokks­for­ystu Ven­stre var ljóst, þegar þarna var komið við sögu að ekki væri víst að Lars Lökke nyti stuðn­ings innan mið­stjórnar flokks­ins til áfram­hald­andi for­mennsku. Ýmsir áhrifa­menn í flokknum höfðu lýst því yfir að for­mað­ur­inn nyti ekki lengur stuðn­ings þeirra og ekki var heldur hægt að líta fram­hjá könn­unum sem sýndu tak­mark­aðar vin­sældir for­manns­ins. Þann 3. júní var boðað til mið­stjórn­ar­fundar í Ráð­stefnu­höll­inni í Óðins­vé­um. Þar hugð­ust and­stæð­ingar Lars Lökke velta honum úr sessi og gera Krist­ian Jen­sen að for­manni. Í nýút­kominni bók um Lars Lökke, sem heitir ein­fald­lega LLR, segir flokks­for­mað­ur­inn að þegar hann lagði af stað til Óðins­véa hafi hann verið hand­viss um að for­mann­s­tíð sinni lyki á þessum fundi. Hann ætl­aði hins vegar að reyna að sjá til þess að Krist­ian Jen­sen sett­ist ekki í for­manns­stól­inn. Til að taka við for­mennsk­unni í flokknum ætl­aði Lars Lökke að tefla fram Sören Gade, gömlum flokks­hesti og fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra en hann hætti á þingi 2010.

Kristian Jensen, varaformaður Venstre, fer með gamanmál við vörð drottningar. Krist­ian Jen­sen, vara­for­maður Ven­stre, fer með gam­an­mál við vörð drottn­ing­ar.

Óvæntur stuðn­ingur á bíla­stæði breytti öllu



Á leið­inni til Óðins­véa stopp­aði Lars Lökke (segir frá þessu í LLR) á bíla­stæði við Ring­sted vestan við Köge. Þarna á bíla­stæð­inu viku sér að honum fjórir Dan­ir. Þeir sögðu Lars Lökke að illa væri komið fram við hann og hann ætti stuðn­ing þeirra. „Þessi trausts­yf­ir­lýs­ing og 100 pró­sent stuðn­ingur fjór­menn­ing­anna á bíla­stæð­inu varð til þess,“ segir Lars Lökke orð­rétt í bók­inni, „að ég hugs­aði; ég skulda þessu fólki það að berj­ast áfram.“ Frá­sögnin af þessum stutta fundi á bíla­stæð­inu vakti mikla athygli og fjöl­miðl­arnir hér eru ekki sér­lega trú­aðir á sann­leiks­gildi henn­ar. Í vin­sælum umræðu­þætti í danska sjón­varp­inu, DR, lýsti þátta­stjórn­and­inn eftir fjór­menn­ing­unum og það hafa tvö dag­blöð einnig gert. Fólkið hefur ekki gefið sig fram.

Þriggja manna fundur í kjall­ar­anum



Fund­inn í Óðins­véum sátu 128 manns, allir sem rétt höfðu til fund­ar­setu. Mjög tví­sýnt var talið að Lars Lökke ætti stuðn­ing meiri­hluta funda­manna vís­an. Áður en kosn­ingu kom var gert hlé og skotið á þriggja manna fundi í kjall­ara­her­bergi í ráð­stefnu­höll­inni. Auk Lars Lökke og Krist­i­ans Jen­sen var þar Lars Krar­up, áhrifa­maður í flokknum og borg­ar­stjóri í Hern­ing. Eng­inn, utan þre­menn­ing­anna, veit með vissu hvað þar fór fram en þegar þeir komu upp úr kjall­ar­anum lýsti Krist­ian Jen­sen yfir stuðn­ingi við Lars Lökke Rasmus­sen til áfram­hald­andi for­mennsku í flokkn­um. Ekstra Blaðið sagði að Krist­ian Jen­sen hefði örugg­lega verið með lyga­merki á putt­unum þegar hann lýsti yfir stuðn­ingn­um.

Fara ekki saman á bar­inn  



Þing­kosn­ingar fara fram hér í Dan­mörku á næsta ári, í síð­asta lagi í sept­em­ber. Skoð­ana­kann­anir benda til stjórn­ar­skipta og gangi það eftir verður for­maður Ven­stre að öllum lík­indum for­sæt­is­ráð­herra. Þrátt fyrir að friður hafi verið sam­inn, á yfir­borð­inu, er mikil ólga innan for­ystu­sveitar Ven­stre. Haft hefur verið eftir vara­for­mann­inum Krist­ian Jen­sen, ekki þó opin­ber­lega, að hann geti ekki hugsað sér að starfa með Lars Lökke eftir næstu kosn­ing­ar. Hann hefur líka sagt að hann ætli sér að vera áfram í stjórn­málum og nýtur enn mik­ils trausts í flokkn­um. Stjórn­mála­skýrendur hér telja að Lars Lökke muni gera allt sem hann geti til þess að „tengja fram­hjá“ Krist­ian Jen­sen og fylg­is­mönnum hans ef Ven­stre kemst í stjórn að loknum kosn­ing­um.

And­rúms­loftið innan for­ystu­sveitar flokks­ins er þannig lævi blandið og allt getur gerst. „Þeir ganga allir um með rýt­ing­inn fal­inn í erminn­i,“ sagði einn stjórn­mála­skýr­andi í blaða­grein fyrir skömmu. Orð sem Krist­ian Jen­sen lét nýlega falla í við­tali lýsa kannski best sam­bandi for­manns og vara­for­manns „ef ég ætl­aði að bregða mér á bar­inn myndi ég ekki hnippa í Lars Lökke og bjóða honum með. Hann myndi ekki heldur bjóða mér með.“ Þetta segir allt um ástandið í flokks­for­yst­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None