135 milljarða afgangur af þjónustuviðskiptum í fyrra - Ferðaþjónustan í aðalhlutverki

kjarninn_ferdamenn.jpg
Auglýsing

Íslend­ingar seldu þjón­ustu til útlanda fyrir 498,4 millj­arða króna í fyrra en keyptu þjón­ustu fyrir 363,6 millj­arða króna. Því var afgangur af þjón­ustu­við­skiptum Íslend­inga árið 2014 alls 134,8 millj­arðar króna. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stofu Íslands sem birtar voru í morgun.

Sala á þjón­ustu til ferða­manna er eðli­lega fyr­ir­ferð­ar­mest í þjón­ustu­við­skiptum þjóð­ar­inn­ar. Sala á sam­göngu- og flutn­ings­þjón­ustu var 189,2 millj­arðar króna (38 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ingi) og sala á ferða­þjón­ustu nam  159 millj­örðum króna (31,9 pró­sent af heild­ar­út­flutn­ing­i). Athygli vekur að tekjur Íslend­inga vegna flutn­inga standa nán­ast í stað á milli ára á meðan að tekjur vegna seldrar ferða­þjón­ustu juk­ust um 28 millj­arða króna milli ára. Ástæðan er að öllum lík­indum sú að mun fleiri flug­fé­lög fljúga nú til Íslands en áður. Sú aukna tíðni skilar fleiri ferða­mönnum hingað til lands en ekki auknum tekjum fyrir íslensk flug­fé­lög.

Íslend­ingar keyptu mest að ferða­þjón­ustu frá útlöndum í fyrra, alls fyrir 113,6 millj­arða króna (31,2 pró­sent af heild­ar­inn­flutn­ing­i). Það er aukn­ing upp á um tíu millj­arða króna milli ára.

Auglýsing

Afgangur tvö­fald­að­ist á milli ára



Langstærsti hluti þjón­ustu­við­skipta okkar er við lönd innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Alls var 48 pró­sent af útfluttri þjón­ustu okkar til þeirra og 61,2 pró­sent af inn­fluttri þjón­ustu. Stærstu þjón­ustu­við­skipta­lönd okkar eru sem fyrr Bret­land, Banda­ríkin og Dan­mörk.

Hin góði afgangur af þjón­ustu­við­skiptum hefur haldið áfram á þessu ári. Á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2015 var hann jákvæður um 54,7 millj­arða króna. Ferða­þjón­usta var stærsti lið­ur­inn í inn- og útflutn­ingi á árs­fjórð­ungn­um. Útflutt ferða­þjón­usta var 54,6 millj­arðar króna á meðan inn­flutt ferða­þjón­usta nam 34,1 millj­arði króna. Afgangur hennar nam því 20,4 millj­örðum króna. Afgangur á sama árs­fjórð­ungi árið 2014 nam 11,2 millj­örðum króna og því ljóst að hagn­aður Íslend­inga af ferða­þjón­ustu á öðrum árs­fjórð­ungi nærri tvö­fald­að­ist milli ára.

Vöru­skipti nei­kvæð



Hinn mikli afgangur af þjón­ustu­við­skiptum gerir það að verkum að við­skipta­jöfn­uður Íslend­inga verður jákvæð­ur, en vöru­skipti við útlönd hafa verið nei­kvæð það sem af er ári um 6,4 millj­arða króna. Á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins fluttu Íslend­ingar inn  vörur fyrir 391,5 millj­arða króna en út fyrir um 385,2 millj­arða króna. Á sama tíma árið 2014 voru vöru­skiptin óhag­stæð um 7,6 millj­arða króna. Vert er að hafa í huga að stórar fjár­fest­ingar íslenskra fyr­ir­tækja hafa haft tölu­verð áhrif á aukn­ingu í inn­flutn­ingi. Alls er inn­flutn­ingur á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 17,2 pró­sent meiri en hann var á sama tíma­bili í fyrra vegna hrá- og rekstr­ar­vöru og kaupa á flug­vél­um.

Iðn­að­ar­vörur eru 54,2 pró­sent alls útflutn­ings það sem af er ári og er verð­mæti þerira 24,8 pró­sent hærra en árið áður. Þar skiptir útflutn­ingur á áli mestu. Sjáv­ar­af­urðir hafa alls verið 41,6 pró­sent vöru­út­flutn­ings og verð­mæti þeirra hefur verið 19,3 pró­sent hærra en í fyrra, aðal­lega vegna útflutn­ings á fiski­mjöli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None