192 verða ákærðir vegna blóðugra átaka vélhjólagengja í Waco

h_51939807-1.jpg
Auglýsing

Tals­maður lög­regl­unnar í Waco, í Texas ríki Banda­ríkj­anna, sagði í dag að 192 ein­stak­lingar verði ákærðir vegna skot­bar­daga sem átti sér stað í borg­inni á sunnu­dag, þar sem vél­hjóla­gengi tók­ust á í blóð­ugum átök­um. The New York Times greinir frá mál­inu.

Skot­bar­dag­inn átti sér stað við vin­sæla versl­un­ar­mið­stöð í Waco, þar sem níu með­limir vél­hjóla­gengja létu lífið og átján slös­uð­ust. Lög­reglu­yf­ir­völd á staðnum segja að átökin hafi átt sér stað á milli vél­hjóla­gengj­anna Bandidos og Cossacks, en gengin hafa lengi eldað grátt silfur sam­an, en auk þeirra tóku með­limir þriggja ann­arra vél­hjóla­gengja þátt í bar­dag­an­um.

Þeir sem voru hand­teknir eftir átökin horfa fram á að vera ákærðir fyrir aðild að skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Þeir voru leiddir fyrir dóm­ara í gær, sem kváðu upp úrskurð sinn að þeim yrði ekki sleppt nema gegn einnar millj­ónar Banda­ríkja­dala trygg­ingu.

Auglýsing

Slags­mál sem þró­uð­ust út í blóð­ugan skot­bar­daga



Veit­inga­stað­ur­inn Twin Peaks, þar sem átökin brut­ust út, verður lok­aður í viku vegna rann­sóknar lög­reglu sem og hluti versl­un­ar­mið­stöðv­ar­innar sem varð hvað harð­ast úti í skot­bar­dag­an­um.

Átökin hófust um hádeg­is­bilið að stað­ar­tíma fyrir utan áður­nefndan veit­inga­stað og færð­ust síðar út á bíla­stæði versl­un­ar­mið­stöðv­ar­inn­ar. Fyrst var um hópslags­mál að ræða sem fljót­lega þró­uð­ust út í vopnuð átök með hníf­um, keðj­um, kylfum og loks skot­vopn­um. Vopn­aðir lög­reglu­menn voru fljótir á stað­inn þar sem lög­reglu­yf­ir­völd höfðu áhyggjur af því að til átaka kæmi á milli hund­ruða með­lima fimm vél­hjóla­gengja sem höfðu safn­ast saman fyrir utan veit­inga­stað­inn.

Ljósmynd sem lögregluyfirvöld í Waco birtu á Facebook-síðu sinni í dag sem sýnir vélhjól fyrir utan veitingastaðinn Twin Peaks. Mynd: EPA Ljós­mynd sem lög­reglu­yf­ir­völd í Waco birtu á Face­book-­síðu sinni í dag sem sýnir vél­hjól fyrir utan veit­inga­stað­inn Twin Peaks. Mynd: EPA

Þegar lag­anna verðir mættu á bar­daga­svæðið snér­ust vél­hjóla­geng­inn sér fljót­lega að þeim og létu byssu­kúlur rigna yfir þá, sem svo svör­uðu með því að fella og særa nokkra vél­hjóla­menn. Átta þeirra létu lífið í bar­dag­anum sjálf­um, sá átt­undi á sjúkra­húsi. Hinir slös­uðu voru síðar sömu­leiðis fluttir á sjúkra­hús með skot- og stungu­sár. Mikil mildi þykir að eng­inn lög­reglu­maður eða sak­laus borg­ari hafi slasast í bar­dag­an­um, en lög­regla hald­lagði um hund­rað vopn í kjöl­far átak­anna.

Huns­uðu til­mæli lög­reglu­yf­ir­valda



„Þetta er versta ástand sem ég hef orðið vitni að á mínum 34 ára ferli,“ hefur The New York Post eftir lög­reglu­manni sem var á vett­vangi. „Það var blóð út um allt.“

Twin Peaks veit­inga­stað­ur­inn hefur áður hýst fjölda­sam­komur vél­hjóla­gengja, en lög­reglu­yf­ir­völd gagn­rýna eig­endur stað­ar­ins fyrir að neita að hlýða til­mælum lög­reglu um að stað­ur­inn hent­aði ekki undir sam­komur af slíku tagi. „Þeir hafa ítrekað leyft þessum vél­hjóla­mönnum að koma saman hjá sér, og það sem gerð­ist er afleið­ing af því,“ segir áður­nefndur lög­reglu­maður í sam­tali við The New York Post. „Það hefði verið hægt að kom­ast hjá þessum hræði­lega atburði ef þeir hefðu bara hlustað á okkur og farið að ráðum okk­ar.“

Twin Peaks, sem er veit­inga­húsa­keðja í Texas, hefur harmað atvikið í frétta­til­kynn­ingu og lofað bót og betrun og að stað­ur­inn muni gera allt sem í sínu valdi stendur til að vinna fram­vegis með lög­reglu­yf­ir­völdum til að hindra slík voða­verk.

Sam­kvæmt umfjöllun The New York Post má rekja til­drög byssu­bar­dag­ans til deilna um bíla­stæði.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None