Áfrýjunarnefnd staðfestir lögbrot Steinullar - Sektin lækkuð úr 20 í 15 milljónir

Páll Gunnar Pálsson
Auglýsing

Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hefur stað­fest að Stein­ull hafi brotið gegn sam­keppn­is­lögum en lækk­aði sekt, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafði áður ákveð­ið, úr tutt­ugu millj­ónum í fimmtán millj­ón­ir. 

Stein­ull skaut ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til áfrýj­un­ar­nefndar sem í dag birti úrskurð sinn. Stað­festi nefndin að Stein­ull hefði brotið gegn umræddri ákvörðun en taldi að það hefði verið minna að umfangi en Sam­keppns­eft­ir­litið lagði til grund­vallar og lækk­aði því sekt. Í úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar seg­ir, að taki hafi verið til­lit til þess að brot Stein­ullar hafi verið „al­var­leg“ og að ekki hafi getað farið á milli mála að upp­lýs­inga­gjöf­in, sem máið byggir á, hafi verið í and­stöðu við „skýr fyr­ir­mæli“ laga.

Þann 15. maí sl. komst Sam­keppn­is­eft­ir­litið að þeirri nið­ur­stöðu að Stein­ull hefði brotið gegn skil­yrðum í ákvörðun sam­keppn­is­ráðs nr. 19/2002, meðal ann­ars með því að veita Húsa­smiðj­unni upp­lýs­ingar um við­skipta­kjör Norð­ur­áls á stein­ull. Umrædd skil­yrði voru sett vegna kaupa Byko, Húsa­smiðj­unnar og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á eign­ar­hlutum í Stein­ull­ar­verk­smiðj­unni hf. (nú Stein­ull hf.). Skil­yrð­unum var ætlað að vinna gegn því að sam­eig­in­leg eign­ar­að­ild Byko og Húsa­smiðj­unnar að Stein­ull myndi tak­marka sam­keppni. Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi hæfi­legt að leggja 20 millj­óna króna stjórn­valds­sekt á Stein­ull vegna þessa.

Auglýsing

Málið byggir á því að Stein­ull hafi brotið gegn sam­keppn­is­lögum með sam­ráði við Húsa­smiðj­una, meðal ann­ars með reglu­bundn­um, yfir­leitt viku­leg­um, sam­skiptum við gömlu  um verð, birgða­stöðu og fleira, „í því skyni að hækka verð/vinna gegn verð­lækk­unum á svo­nefndum gróf­vörum (gróf­vörur eru t.d. timb­ur, stein­ull og stál)“ eins og orð­rétt segir í reifun nið­ur­stöð­unnar á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Þá er einnig byggt á því, að Stein­ull hafi gert sam­eig­in­lega til­raun með Húsa­smiðj­unni til að fá Múr­búð­ina til að taka þátt í sam­ráði um „verð á gróf­vöru og með því að hafa ákveðið með Húsa­smiðj­unni að fylgj­ast með aðgerðum Múr­búð­ar­innar á mark­aðn­um.“

Það var Stein­ull sem skaut mál­inu til áfrýj­un­ar­nefnd­ar, eftir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti ákvörðun sína, 15. maí á þessu ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None