Útboði á flugferðum ríkisstarfsmanna frestað - erlend flugfélög gera tilboð

Útboð á flugferðum ríkisstarfsmanna sem átti að fara fram í haust verður frestað fram að áramótum. Óvíst hversu stóran skerf íslensk flugfélög fá að útboðinu loknu.

Icelandair og Iceland Express tóku þátt í síðasta útboði á flugferðum ríkisstarfsmanna. Nú fljúga mun fleiri flugfélög til Íslands.
Icelandair og Iceland Express tóku þátt í síðasta útboði á flugferðum ríkisstarfsmanna. Nú fljúga mun fleiri flugfélög til Íslands.
Auglýsing

Ekki verður til­kynnt um útboð Ríks­kaupa á flug­miðum fyrir opin­bera starfs­menn í haust eins og til stóð. Talið er að erlend flug­fé­lög muni vilja taka þátt í útboð­inu. Frá þessu er greint á vef Túrista.is og þar talið ólík­legt að íslensk flug­fé­lög muni sitja ein að flug­ferðum rík­is­starfs­manna til Evr­ópu.

Síð­ast var óskað eftir til­boðum í flug­ferðir fyrir rík­is­starfs­menn árið 2011 en þá bár­ust aðeins til­boð frá Icelandair og Iceland Express. Samið var við bæði flug­fé­lögin um flug­ferðir á fimm leiðum en ári síðar var starf­semi Iceland Expres hætt. WOW Air kærði stöðu mála í byrjun 2015 og komst kæru­nefnd útboðs­mála að þeirri nið­ur­stöðu að halda þyrfti annað útboð.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum túrista.is er ennþá unnið að því að klára útboðs­gögn­in. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um fram­kvæmd útboðs­ins heldur en von­ast er til að vinn­unni ljúki fyrir ára­mót. Gert er ráð fyrir því að útboðin megi ekki bjóða hvata fyrir starfs­menn til að ferð­ast hjá við­kom­andi flug­fé­lagi eða veita þeim per­sónu­leg fríð­indi á borð við vild­ar­punkta.

Auglýsing

Nokkur umræða hefur verið um fram­kvæmd og eðli­lega hætti þegar kemur að kaupum rík­isns á flug­miðum fyrir starfs­menn. Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, hefur látið hafa eftir sér að það sé í „hæsta máta óeðli­legt að rík­is­starfs­menn þiggi vild­ar­punkta til per­sónu­legra nota vegna flug­ferða sem skatt­greið­endur hafa borgað fyr­ir“.

For­svars­menn erlendra flug­fé­laga hafa lýst áhuga á því að taka þátt í útboð­inu. Nýverið gerðu dönsk stjórn­völd samn­inga um flug­ferðir danskra rík­is­starfs­manna. Þar var óskað eftir til­boðum í hátt í 200 flug­leiðir og samn­ingar gerðir við þrjú flug­fé­lög á hverri leið. Starfs­mönnum er svo skylt að velja ódýrasta flug­farið á hverri leið en skil­yrt var í útboð­inu að flug­fé­lögin byðu upp á að minnsta kosti þrjár ferðir í viku.

Flug­é­lög á borð við SAS og Brit­ish Airwa­ys, sem hingað fljúga nokkrum sinnum í viku, gætu hugs­an­lega boðið betur en íslensku flug­fé­lögin Icelandair og WOW air á leiðum til Evr­ópu. Á leiðum vestur um haf er Delta eina erlenda flug­fé­lagið sem lendir í Kefla­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None