Ekki víst að álverið í Straumsvík myndi losna undan kaupskyldu

alver-1.jpg
Auglýsing

Raf­orku­sölu­samn­ingur á milli Rio Tinto Alcan og Lands­virkj­unar var end­ur­nýj­aður í fyrra og gildir til árs­ins 2036. Það er alls óvíst að Rio Tinto gæti losnað undan samn­ingnum ef álver­inu í Straums­vík yrði lok­að, eins og for­svars­menn álvers­ins hafa haldið fram und­an­farna daga að gæti ger­st, að mati Ket­ils Sig­ur­jóns­sonar sér­fræð­ings og miðað við þær upp­lýs­ingar sem fyrir liggja. 

For­svars­menn álvers­ins halda því fram að ef til verk­falls kemur þann 2. des­em­ber næst­kom­andi þurfi að loka álver­inu og þá sé ekki sjálf­gefið að það verði opnað aft­ur. Almennir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa átt í lang­vinnri kjara­deilu við fyr­ir­tæk­ið, sem strandar einna helst á því að fyr­ir­tækið vill bjóða verk­efni út í verk­töku í auknum mæli. 

Alcan gæti þurft að sanna að það hafi gert allt sem það gat

Raf­orku­samn­ingar sem Lands­virkjun gerir eru trún­að­ar­mál, og því er erfitt að ganga að nokkru vísu um þessi mál. For­svars­menn Lands­virkj­unar vilja ekki tjá sig um „við­kvæma kjara­deilu“, að sögn Magn­úsar Þórs Gylfa­son­ar, for­stöðu­manns sam­skipta­sviðs Lands­virkj­un­ar.

Auglýsing

Almennir skil­málar Lands­virkj­unar vegna sölu á for­gangs­raf­magni eru hins vegar ekki trún­að­ar­mál, en þeir taka almennt um við­skipti Lands­virkj­unar um for­gangs­raf­magn við þau fyr­ir­tæki sem kaupa meira en 1 GWst á ári, sem Rio Tinto Alcan ger­ir. Meiri­hluti orkunnar sem fyr­ir­tækið kaupir er for­gangs­raf­magn. 

Í almennu skil­mál­unum er ákvæði um óvið­ráð­an­leg öfl (force majeure) sem geti haft áhrif á samn­inga. Meðal þess sem telst til óvið­ráð­an­legra afla er ófriður og bylt­ing­ar, en einnig ýmsar nátt­úru­ham­farir og „hvers kyns ámóta atvik sem ekki er unnt að koma í veg fyrir eða hafa stjórn á með eðli­legum ráðum af hálfu aðil­anna.“ Þá getur ákvæðið átt við um alls­herj­ar­verk­föll, stað­bundin verk­föll og ámóta vinnu­trufl­an­ir, „sem aðili sá, er fyrir slíku verð­ur, hefur ekki getað komið í veg fyrir eða haft stjórn á, þótt hann hafi beitt öllum eðli­legum ráðum, sem honum voru til­tæk“ en sá sem ætlar að bera fyrir sig óvið­ráð­an­legum öflum þarf að sanna þau. 

Ef ákvæði sem þetta er í samn­ingum Lands­virkj­unar við Rio Tinto Alcan þarf fyr­ir­tækið því vænt­an­lega að sýna fram á að það hafi beitt öllum eðli­legum ráðum til að koma í veg fyrir lok­un­ina, ef það ætlar að reyna að losna undan raf­orku­samn­ingn­um. 

Því til við­bótar má nefna að hluti samn­ings­ins á milli Lands­virkj­unar og Rio Tinto Alcan er aðgengi­leg­ur, vegna þess að samn­ingar af þessu tagi hafa farið fyrir ESA, eft­ir­lits­stofnun ESA. Þar kemur fram að í sjö­undu grein samn­ings­ins sé "Take or Pay" ákvæði, sem hefur í för með sér að álverið í Straums­vík þurfi að greiða fyrir ákveðið magn af orku á ári, burt­séð frá því hvort fyr­ir­tækið noti minni orku. Ekk­ert kemur fram um það í opin­berum gögnum hvort force majeure ákvæði er í samn­ingnum eða ekki. 

Samn­ing­ur­inn milli Lands­virkj­unar og Rio Tinto var end­ur­skoð­aður í fyrra, en hann var upp­haf­lega gerður árið 2010, og gildir til 2036. Rio Tinto skil­aði meðal ann­ars 35 MW af ónot­uðu afli og greiddi 17 millj­ónir dala vegna þess kostn­aðar sem hlaust af því að Búð­ar­háls­virkjun var byggð fyrr en þörf var á. Virkj­unin var byggð til að efna samn­ing­inn frá 2010, því Rio Tinto ætl­aði að auka fram­leiðslu sína, en það gekk ekki eft­ir. 

Finnst ólík­legt að hægt verði að kom­ast undan kaup­skyldu 

Ket­ill Sig­ur­jóns­son, sér­fræð­ingur í orku­málum sem heldur úti Orku­blogg­inu, fjallar um málið á bloggi sínu. Þar segir hann að mögu­legt sé að ef til verk­falls kemur geti fyr­ir­tækið losnað undan kaup­skyldu á orku á meðan verk­fallið var­ir. En hann telur veru­lega ólík­legt og nán­ast úti­lokað að álverið geti losnað undan samn­ingnum ein­hliða ef álver­inu verður lokað með vísan til tjóns vegna verk­falls­ins. 

Ket­ill bendir á að kaup­skylda álvers­ins sé nálægt 3 TWst af orku á ári, og sam­kvæmt útreikn­ingum hans greiðir fyr­ir­tækið fyrir það nálægt 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala.  



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None