Hagfræðideild Landsbankans mælir með kaupum á bréfum Haga - Félagið hækkaði um 3,17 prósent

hagar.jpg
Auglýsing

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans hefur upp­fært verð­mat sitt á Hög­um, sem rekur meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Bón­uss, í kjöl­far síð­asta upp­gjörs félags­ins, og metur það töl­ur­vert yfir mark­aðsvirði dags­ins. Mælt er með því að fjár­festar kaupa bréf í félag­inu.

Virði Haga er metið á 49,2 kr. á hlut, sam­kvæmt verð­mat­inu, sem er hækkun frá síð­asta verð­mati bank­ans og 11,4 pró­sent hærra en dagsloka­gengi félags­ins í gær. Gengi bréfa Haga hefur hækkað um 3,17 pró­sent í dag, meira en hjá öðrum félög­um, en heild­ar­velta við­skipta með bréfin var um 402 millj­ónir króna í dag, sam­kvæmt vef Keld­unnar.

Verja fram­legð

Í verð­mati hag­fræði­deildar Lands­bank­ans, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, kemur fram að stjórn­endum Haga hafi tek­ist að verja fram­legð og hagnað á rekstr­ar­ár­inu, þrátt fyrir að launa- og rekstr­ar­kostn­aður hafi hækkað nokk­uð. Fyrstu tölur úr rekstr­inum virð­ist gefa til kynna að áhrifin verði ekki mikil á rekstur félags­ins. Helstu áhættu­þættir séu sem fyrr tengdir verð­bólgu, gengi krón­unnar og sam­keppni.

Auglýsing

Í verð­mat­inu segir að Hagar séu mark­aðs­ráð­andi fyr­ir­tæki og ekki lík­legt að mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins geti auk­ist mik­ið. „Það er við­búið að vöxtur Haga fari að miklu leyti eftir verð­bólgu­þróun og hag­vexti, til lengri og skemmri tíma. Verð­bólgu­horfur eru lágar fram á mitt næsta ár, en þá gerir spá Hag­fræði­deildar ráð fyrir að hún auk­ist og verði 4,7 pró­sent árið 2017 og 3,9 pró­sent árið 2018. Fyr­ir­hug­aðar tolla­breyt­ingar munu einnig hafa áhrif á tekju­vöxt Haga, en afnám tolla á föt munu taka gildi um ára­mót­in. Þrátt fyrir litla verð­bólgu árið 2016 og tolla­breyt­ingar er gert ráð fyrir góðum hag­vexti og tölu­verðri aukn­ingu í einka­neyslu, sem vegur á móti og styður við tekju­vöxt 2016. Allar vís­bend­ingar um neyslu vísa uppá við og mun það styðja við tekju­vöxt Haga,“ segir í verð­mat­inu.

Verðmat greiningardeildar Landsbankans.

Hag­ræð­ing og aukin neysla í kort­unum

Kjara­samn­ing­arnir sem sam­þykktir voru í vor höfðu 6,3 pró­sent aukn­ingu í launa­kostn­aði félags­ins í för með sér á öðrum árs­fjórð­ungi. Að auki jókst ann­ar rekstr­ar­kostn­aður um 3,4 pró­sent milli ára á öðrum árs­fjórð­ungi, að því er segir í verð­mat­in­u. 

Ljóst sé að launa­kostn­aður muni halda áfram að hækka á næsta ári og telja grein­endur að félagið muni leita leiða til að hag­ræða í rekstri til þess að mæta auknum kostn­aði. Félagið áætlar að ná fram sparn­aði með því að fækka leigu­fer­metrum sín­um, sér­stak­lega með lokun versl­ana á Korpu­torgi og minnkun versl­un­ar­innar í Smára­lind, eins og fram hefur kom­ið.

„Á móti kemur að félagið mun opna nýjar versl­anir í Kefla­vík, Vest­manna­eyjum og í Skip­holti. Þá mun nýtt vöru­hús Ban­ana verða tekið í notkun árið 2016. Kostn­aður við bygg­ing­una er um 1,5 millj­arður króna og mun þungi fjár­fest­ing­ar­inn­ar lenda yfir­stand­andi rekstr­ar­ári. Aukin hag­kvæmni í fast­eignum félags­ins styður afkomu félags­ins fram á við,“ segir í verð­mat­inu.

Sam­keppni við Costco

Sér­stak­lega er vikið að því að sam­keppni verði alltaf áhættu­þáttur fyr­ir­tækja á mat­vöru­mark­aði, og þar bein­ast spjótin ekki síst að Hög­um. Þrátt fyrir fyr­ir­hug­aða opnun Costco í Garðabæ þá virð­ast grein­endur ekki meta mik­il áhrif vegna þessa í verð­mat Haga „enda sam­keppni alltaf við­var­andi áhættu­þáttur hjá mark­aðs­ráð­andi fyr­ir­tæki“ eins og segir í verð­mat­in­u. 

Búist er við því að EBITDA rekstr­ar­hagn­aður rekstr­ar­árs­ins verði 5,5 millj­arðar króna og í heild 1,4 pró­sent lægri en á síð­asta rekstr­ar­ári. „EBITDA fram­legðin var 7,3 pró­sent árið  ́14/15 og við gerum ráð fyrir að hún verði 7,1 pró­sent á þessu ári og síðan sjö pró­sent þar eft­ir. Hag­ræð­ing­ar­að­gerðir næstu ára munu hafa mikið að segja og miklar breyt­ingar í gengi krónu munu eftir sem áður hafa áhrif á tekju­vöxt­inn,“ segir í verð­mat­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None