Átta karlkyns þingmenn leggja til að túrtappaskattur verði lækkaður

Túrtappar
Auglýsing

Átta þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafa lagt fram frum­varp um að virð­is­auka­skattur á dömu­bindi og túrtappa verði lækk­aður úr 24 pró­sent í 11 pró­sent. Með breyt­ing­unni myndu vör­urnar fær­ast í lægra virð­is­auka­skatts­þrep­ið. Flutn­ings­menn til­lög­unnar eru allt karl­ar. Þeir eru Róbert Mars­hall, Árni Páll Árna­son, Guð­mundur Stein­gríms­son, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Helgi Hjörvar, Ótt­arr Proppé, Páll Valur Björns­son, Stein­grímur J. Sig­fús­son og Össur Skarp­héð­ins­son. 

„Hvers vegna er verið að skatt­leggja á mér leg­ið?“

Dömu­bindi og túrtappar voru til umræðu á Alþingi Íslend­inga í nóv­em­ber þegar Heiða Kristín Helga­dótt­ir, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar, spurði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hvort unnið væri að því að lækka virð­is­auka­skatt á þær vör­ur. Heiða Kristín spurði: „Hvers vegna er verið að skatt­leggja á mér leg­ið?“.

Í ræðu sinni vakti Heiða Kristín athygli á því að virð­is­auka­skattur á smokka, bleiur og bleiu­fóður hafi verið lækk­aður í aðgerðum fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þar sem vöru­gjöld voru afnumin og virð­is­auka­skattur á ýmsar vörur lækk­að­ur. Virð­is­auka­skattur á dömu­bindi og túrtapa hafi hins vegar verið lát­inn vera áfram 24 pró­sent.

Auglýsing

Bjarni sagði í svari sínu að breyt­ing­arnar á virð­is­auka­skatts­kerf­inu hafi verið ætl­aðar að létta barna­fjöl­skyldum inn­kaup.

Bretar gefa túrtappa­skatt­inn

George Osborne, fjár­mála­ráð­herra Breta, til­kynnti fyrir viku síðan að Bret­land muni gefa allar skatt­tekjur vegna skatts sem lagður er á túrtappa og dömu­bindi til góð­gerð­ar­mála í þágu kvenna. Þetta kom fram í ræðu sem hann flutti í dag um fram­gang fjár­hags­á­ætl­unar rík­is­stjórnar Íhalds­flokks­ins. Um er að ræða 15 millj­ónir punda á ári, eða um þrjá millj­arða króna. 

Sam­kvæmt Evr­ópu­reglum verður að leggja að minnsta kosti fimm pró­sent virð­is­auka­skatt á ýmsar hrein­læt­is­vör­ur, meðal ann­ars túrtappa og dömu­bindi, þar sem þær telj­ast vera lúx­us-vör­ur. Alls hafa um þrjú hund­ruð þús­und manns í Bret­landi skrifað undir áskorun á stjórn­völd að afnema slíkan skatt.

Rík­is­stjórn Verka­manna­flokks­ins lækk­aði skatt­inn úr 17,5 pró­sent í fimm pró­sent árið 2000 en gat ekki lækkað hann meira vegna reglna Evr­ópu­sam­bands­ins. Osborne sagði að rík­is­stjórnin ætl­aði áfram sem áður að þrýsta á Evr­ópu­sam­bandið að afleggja þann fimm pró­sent skatt sem enn er á vör­unum en þangað til að það bæri árangur myndi ríkið gefa allar tekjur sem skatt­ur­inn skil­aði til góð­gerð­ar­mála í þágu kvenna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None