Michael Flynn hættur sem þjóðaröryggisráðgjafi

Flynn ræddi við sendiherra Rússlands um viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum, en hann sagði við Mike Pence, varaforseta, að hann hefði ekki gert það. FBI hefur nú samskipti Flynn við Rússa til rannsóknar.

Michael Flynn
Auglýsing

Mich­ael Flynn er hættur sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Don­alds J. Trump Banda­ríkja­for­seta, en sam­kvæmt fréttum Bloomberg er hann sagður hafa logið að Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, um að hann hefði ekki rætt við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum við Ser­­gei Kis­lyak, sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­un­um.

Keith Kellogg hefur tíma­bundið tekið við sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi.



Svo virð­ist sem nú liggi fyrir að Flynn hefði rætt þving­an­irn­ar, og ýmis­legt fleira, við Kis­lyak í aðdrag­anda emb­ætt­is­töku for­set­ans og einnig í nokkrum sím­tölum í des­em­ber. Alrík­is­lög­reglan FBI er nú með þessi sam­skipti Flynn við sendi­herr­ann til rann­sókn­ar, en óbreyttum borg­urum í Banda­ríkj­unum er óheim­ilt að eiga í sam­skiptum um þjóðar­ör­ygg­is­mál Banda­ríkj­anna við diplómata eða sendi­herra frá öðrum lönd­um.



Staða þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa er ein æðsta staðan innan banda­ríska stjórn­kerf­is­ins og vinnur hann náið með for­set­an­um.

Í upp­sagn­ar­bréfi sínu, sem birt hefur verið á vef Boston Globe, játar Flynn að hafa greint Mike Pence, vara­for­seta, rang­lega frá um sam­skipti sín við sendi­herra Rúss­lands. Hann seg­ist jafn­framt hafa beðið for­set­ann og vara­for­set­ann afsök­un­ar.



Flynn neit­aði í fyrstu að ræða málið við fjöl­miðla, þegar efa­semdir um að hann væri að segja satt komu upp, en sagð­ist síðan ekki vera viss um það hvort hann hefði rætt við rús­s­­neska send­i­herr­ann. Þetta leiddi til vanga­velta um það hvort hann hefði greint Pence rangt frá, og atburða­rásin í dag virð­ist hafa verið hröð og leiddi hún til þess að Flynn hætti.

Auglýsing

Stephen Mill­er, ráð­gjafi Trumps, neit­aði fyrr í dag að svara því þegar fjöl­miðlar inntu hann eft­ir því hvort Trump bæri traust til Flynns. Sagði hann að for­­set­inn sjálf­ur yrði að svara því. Hann hefur ekki tjáð sig opin­ber­lega um afsögn Flynns.

Sonur Flynn, Micheal G. Flynn, hætti í teym­inu hjá Don­ald Trump í des­em­ber síða­sliðn­um, fyrir að dreifa fölskum fréttum um Hill­ary Clint­on. Þeir feðgar eru því báðir horfnir á braut og koma ekki að valda­þráðunum í Hvíta hús­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None