Umræðum um fjárlagafrumvarpið verður haldið áfram eftir helgi, vonandi á mánudag, segir Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis. Þá mun hefjast önnur umræða um frumvarpið, en hún átti samkvæmt starfsáætlun þingsins að fara fram þann 26. nóvember síðastliðinn. Á mánudag verður því komin 12 daga seinkun á starfsáætluninni.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, vakti athygli á því á Alþingi í dag að meirihluti fjárlaganefndar Alþingis væri ekki búin að skila af sér breytingartillögum sínum fyrir aðra umræðu fjárlaganna. „Þriðja umræða fjárlaga átti að fara fram í gær og maður spyr sig: Hvað veldur?“ Árni Páll sagði ótrúlegan skort á verkstjórn af hálfu forystu fjárlaganefndar og ríkisstjórnarinnar. „Ég verð því að spyrja virðulegan forseta: Hvenær getur þá önnur umræða fjárlaga farið fram og mun forseti ekki fara að tryggja það að forusta fjárlaganefndar hætti að móðga fólk úti í bæ og fari að vinna vinnuna sína?“
Það er löngu orðið ljóst að komin sé seinkun á þingstörfin, líkt og oft gerist á þessum tíma, enda eru aðeins þrír dagar eftir af þinginu samkvæmt starfsáætlun.Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, sagði í samtali við Kjarnann þegar þetta var orðið ljóst að hún væri „algjörlega óstressuð yfir því“ að seinkun væri komin á afgreiðslu fjárlaga. Hún sagði það vera til þess fallið að skapa úlfúð þegar rætt væri um að umræður muni ekki standast starfsáætlun þingsins og stjórnarandstaðan hugsi ekki um dagskrá þingsins þegar hún stundaði málþóf.
Stjórnarfrumvörpum fjölgað
Eins og fram kom í fréttaskýringu Kjarnans í nóvember hafði ríkisstjórnin aðeins lagt fram 25 stjórnarfrumvörp þann 23. nóvember. Aldrei á þessari öld hafði ríkisstjórn lagt fram eins fá mál þegar svo langt var liðið á haustþing. Síðan þá hefur ríkisstjórnin hins vegar lagt fram 20 stjórnarfrumvörp til viðbótar, svo málin eru alls 45. Sex eru orðin að lögum, tíu bíða enn fyrstu umræðu á meðan 21 er í nefnd eftir fyrstu umræðu. Tvö frumvörp hafa verið afgreidd úr nefnd og bíða annarrar umræðu, þrjú eru í nefnd eftir aðra umræðu og þrjú bíða þriðju og síðustu umræðu.