Illugi: Það vantar fólk í þetta land og við höfum gott af því að fá aðeins fleiri hingað

illugi-gunnarsson.jpg
Auglýsing

Það vantar fólk í þetta land og við höfum gott af því að fá aðeins fleiri hingað inn hvað það varð­ar,“ sagði Ill­ugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra á Alþingi í dag. Ill­ugi var að svara fyr­ir­spurn frá Ótt­ari Proppé, for­manni Bjartrar fram­tíð­ar, um íslensku­kennslu fyrir inn­flytj­end­ur. 

Ótt­arr sagði það eig­in­lega eins­dæmi á Norð­ur­löndum að kostn­aður við tungu­mála­kennslu inn­flytj­enda sé ekki að fullu greiddur af rík­inu. Greiðslu­hlut­fal rík­is­ins hefði farið lækk­andi og það væri orðið hamlandi fyrir inn­flytj­endur að sækja íslensku­nám. Ill­ugi sagði átak til að bæta læsi nem­enda gagn­ast öll­um, bæði íslenskum og erlendum börn­um, og miklu skipti að tryggja að öll börn geti lesið á íslensku. Það þurfi líka að horfa á mót­töku flótta­manna í stærra sam­hengi og til lengri tíma en nokk­urra mán­aða. „Mér hefur fund­ist svo­lítið vanta í þessa umræðu akkúrat þann punkt sem hátt­virtur þing­maður tekur hér upp, að við séum með nægi­legt fjár­magn.“ 

Ótt­arr benti þá á að kvótaflótta­menn væru lít­ill hluti af heild­ar­meng­inu. Allt í allt búi tug­þús­undir útlend­inga á Íslandi sem tali annað tungu­mál sem fyrsta mál. Hann hvatti til þess að þessi mála­flokkur yrði styrkt­ur.

Auglýsing

„Með því að taka vel á móti útlend­ing­um, hvort sem um er að ræða flótta­menn eða bara það fólk sem kýs að koma hing­að, búa með okkur hér og starfa með okk­ur, eru fólgin mikil tæki­færi fyrir okkur Íslend­inga til að fjár­festa í þessum hópi, sér­stak­lega börn­un­um, tryggja að þau læri íslensk­una. Um leið og við lærum tungu­málið lærum við líka þau gildi, þær hug­myndir og þann hug­mynda­heim sem við erum sjálf sprottin upp úr og þar með auð­vitað eiga þessir ein­stak­lingar miklu betri tæki­færi til að verða hluti af sam­fé­lag­inu. Það vantar fólk í þetta land og við höfum gott af því að fá aðeins fleiri hingað inn hvað það varð­ar,“ sagði Ill­ug­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None