Samkomulag nærri 200 ríkja um loftslagsmál er í höfn. Það var samþykkt rétt fyrir klukkan 18:30 að íslenskum tíma, í lok tveggja vikna ráðstefnu í París.
Samkomulagið er sögulegt og er í fyrsta sinn sem ríki um allan heim koma sér saman um minnkun gróðurhúsalofttegunda og reyna þannig að komast hjá verstu afleiðingum loftslagsbreytinga á heiminn.
Kjarninn hefur haldið úti umfjöllun um fundinn alla vikuna, en Birgir Þór Harðarson blaðamaður var í París á fundinum. Umfjöllun hans má lesa hér.
Halda á hlýnun heimsins vel undir tveimur gráðum og miða við að ná henni í 1,5 gráður. Samkomulag þess efnis verður lagalega bindandi. Rík ríki munu heita 100 milljörðum dala fyrir árið 2020 til að hjálpa fátækum ríkjum. Ríkisstjórnin og stórfyrirtæki hafa sagt að samkomulagið sendi sterk skilaboð um að tími jarðefnaeldsneytis sé að verða búinn.
Fyrr í dag sagði Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands, að ef samkomulagið yrði samþykkt yrði dagurinn í dag sögulegur. Hann greindi frá nokkrum atriðum og uppskar fagnaðarlæti úr sal þegar hann sagði að unnið yrði að því að hlýnun jarðar verði nær 1,5 gráðum. „Við þurfum að sýna heiminum að sameiginlegt átak er meira virði heldur en aðgerðir hvers og eins,“ sagði hann.
Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, talaði einnig á fundinum fyrr í dag og sagði samkomulagsdrögin vera söguleg. „Samkomulagið lofar að færa heiminn inn á nýja braut. […] Klárum nú málið. Allur heimurinn fylgist með.“
Meðal þess sem er nýtt í samkomulagsdrögunum sem voru kynnt í dag er viðmiðið um 1,5 gráðu hlýnun, sem er mun metnaðarfyllra og erfiðara markmið en tveggja gráðu hlýnun. Þá er kveðið á um að á fimm ára fresti verði kannað hvernig ríkjunum gengur með loftslagsáætlanir sína. Hins vegar er búið að taka út tímalínu yfir það hvernig eigi að skipta út jarðefnaeldsneyti á seinni hluta aldarinnar.
Fjölmörg félagasamtök hafa strax sent frá sér álit á samkomulagsdrögunum og viðbrögðin eru að mestu leyti jákvæð. Greenpeace segir hjólin snúast hægt í loftslagsaðgerðum, en þau hafi snúist í París.
Samkomulagið hefur hins vegar líka verið gagnrýnd harðlega, en í viðtali við Guardian segir James Hansen, sem vann hjá NASA og er álitinn sá maður sem kom loftslagsáhyggjum hvað mest á kortið, að samkomulagið séu svik. „Það er bara kjaftæði að þau segi: „Við ætlum að hafa tveggja gráðu hlýnunartakmark og svo reyna að gera aðeins betur á fimm ára fresti.“ Þetta eru bara innantóm orð. Það eru engar aðgerðir, bara loforð. Á meðan jarðefnaeldsneyti virðast vera það ódýrasta sem eru í boði, þá verður haldið áfram að brenna því.“ Hann segir að útblástur er ekki skattlagður þvert á alla verði enginn árangur. Slíkt muni bara koma í veg fyrir allra verstu afleiðingar loftslagsbreytinga.