Rafrænar mælingar mæla ekki viðhorf eða stjórnmálaskoðanir

vigdís hauksdóttir - Mynd: Anton Brink
Auglýsing

Raf­rænn útbún­aður mælir ekki við­horf eða stjórn­mála­skoð­anir fólks, heldur fara slíkar mæl­ingar fram hjá Gallup með hefð­bundnum spurn­inga­könn­unum í gegnum síma eða net. Þetta kemur fram í svari Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, við ­fyr­ir­spurn Vig­dísar Hauks­dótt­ur, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­manni fjár­laga­nefnd­ar. 

Vig­dís spurði hvort að raf­rænn útbún­aður sé not­aður „við skoð­ana­kann­anir sem varða fylgi stjórn­mála­flokka og önnur álita­efni, svo sem and­stöðu við Evr­ópu­sam­band­ið.“ 

Vig­dís spurði Ragn­heiði Elínu um raf­rænar mæl­ingar á fjöl­miðla­notkun og um skoð­ana­kann­anir. Hún vildi vita á hvaða grunni Capacent ann­ars vegar og fjöl­miðla­fyr­ir­tækin RÚV, 365 og Skjár­inn hins veg­ar, fengu und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum til þess að mæla fjöl­miðla­notkun með raf­rænum útbún­aði og hvort und­an­þágan er enn í gild­i. 

Auglýsing

Þá vildi Vig­dís vita hvernig mæl­ing­arnar fara fram. „Er val­inn hópur sem er for­kann­aður og ef svo er, hver velur hann?“ Og að lokum vildi hún vita hvort þessi sami háttur er hafður á þegar kannað er fylgi stjórn­mála­flokka og önnur álita­efni eins og and­stöðu við Evr­ópu­sam­band­ið. 

Útvarp Saga kvart­aði 

Eins og Kjarn­inn greindi frá þegar fyr­ir­spurnin bar­st, veitti Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­starf­inu milli ljós­vaka­miðl­anna og Capacent und­an­þágu frá sam­keppn­is­lögum að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum í des­em­ber 2008. Þar kom fram að und­an­þágan væri bundin við sama tíma og gild­is­tími samn­ings­ins sem fyr­ir­tækin höfðu gert sín á milli, eða til 2. apríl 2013. 

Í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um málið má líka lesa um ástæður þess að und­an­þágan frá sam­keppn­is­lögum var veitt. Iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neytið vísar í sömu ákvarð­anir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ins í svari sín­u. 

Þar stendur meðal ann­ars að það séu „neyt­endur af marg­vís­legum toga sem hafa af því mikla hags­muni að fyrir liggi og unnt sé að afla sem áreið­an­leg­astra upp­lýs­inga um hlustun og áhorf á íslenska ljós­vaka­miðla. Verður að telja sam­starf um raf­rænar mæl­ingar með hinni nýju tækni til þess fallið að bæta þjón­ustu, bæði fjöl­miðl­anna og þeirra sem reiða sig á nið­ur­stöður fjöl­miðla­mæl­inga og þar með stuðla að efna­hags­legum fram­för­u­m.“ 

Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sama mál frá því í maí í fyrra kemur fram að Capacent fall­ist þá á að hlíta enn ítar­legri skil­yrðum við fram­kvæmd mæl­inga til að auð­velda aðkomu nýrra og minni ljós­vaka­miðla. Kvart­anir höfðu borist um málið frá Útvarpi Sögu árið 2010 sem varð til þess að eft­ir­litið fór að skoða málið frek­ar. Gamla Capacent fór svo í þrot árið 2011 og nýja félagið gerði tví­hliða samn­inga við fjöl­miðl­ana, sem áttu þannig ekki lengur í sam­starfi um mæl­ing­arn­ar.

Mæl­arnir eru raf­tæki sem nema falið hljóð­merki

Í sama úrskurði má einnig lesa svör við spurn­ingum Vig­dísar um tækn­ina sem notuð er við mæl­ingar á notkun þess­ara fjöl­miðla og hvernig mæl­ing­arnar fara fram. Mæl­ingin er gerð með svoköll­uðum ppm mælum sem ein­stak­lingar í úrtaki bera á sér. Mæl­arnir eru lítil raf­tæki sem nema sér­stakt falið hljóð­merki sem er komið fyrir í útsend­ingu þeirra útvarps- og sjón­varps­stöðva sem taka þátt í mæl­ing­unni. Í lok hvers dags eru upp­lýs­ingar sendar í mið­læga tölvu Capacent. Þetta er hinn raf­ræni útbún­aður sem not­ast er við. 

Hvað varðar aðferða­fræð­ina byrjar fyr­ir­tækið á því að gera for­könnun hjá stórum hópi almenn­ings á notkun ljós­vaka­miðla. „Í kjöl­farið byggir Capacent upp og við­heldur hópi þátt­tak­enda sem á að end­ur­spegla almenn­ing í land­inu m.t.t. ljós­vaka­miðla­notk­un­ar. Ýmissa upp­lýs­inga er aflað í for­könnun og upp­færslukönn­unum Capacent m.a. upp­lýs­ingar um fjöl­skyldu­mynstur, áskriftir að fjöl­miðl­um, lýð­fræði­legar upp­lýs­ingar o.fl. Með for­könn­un­inni leit­ast Capacent við að tryggja að í úrtak­inu, sem mun bera á sér hina raf­rænu mæla, sé jafnt hlut­fall heim­ila af ákveð­inni gerð og í þýð­inu (þ.e. stað­setn­ing, fjöldi á heim­ili, aldur o.s.frv.).“ 

Eftir að starfs­menn á rann­sókn­ar­sviði Capacent keyptu þann hluta fyr­ir­tæk­is­ins í byrjun þessa árs var nafni rann­sókn­ar­sviðs­ins breytt í Gallup. Fjöl­miðla­rann­sókn­irnar eru undir þeim hatti nú. Gallup gerir einnig kann­anir á fylgi flokka og ýmsu öðru, og hægt er að lesa um aðferða­fræð­ina við þær kann­an­ir á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins. Þar er ekki not­ast við raf­rænan útbún­að, og ekki heldur hjá MMR, sem einnig kannar fylgi flokka reglu­lega. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None