Meira en helmingur Íslendinga á aldrinum 18 til 75 ára, eða slétt 55%, hlakkar mikið til jólanna samkvæmt nýrri könnun Maskínu, en skýrsla þar sem fjallað er um könnunina, spurningar hennar og niðurstöður, má finna á vef Maskínu. Sérstaklega er fjallað um lífshamingju, kvíða og tilhlökkun í tengslum við jólahaldið, að því er fram kemur í skýrslunni.
Á bilinu 14 til 15 prósent hlakka lítið eða ekkert til jólanna, en þar af 3 til 4 prósent mjög lítið eða ekkert, að því er fram kemur í skýrslunni.
„Konur hlakka meira til jólanna en karlar og tekjuhærri meira en tekjulægri, svo dæmi séu tekin af tilhlökkun fólks skipt eftir bakgrunni þess,“ segir á vef Maskínu.
Maskína spurði einnig um kvíða fyrir jólin. Rúmur helmingur Íslendinga kvíðir jólum mjög lítið eða ekkert, en 7 til 8 prósent kvíða þeim mikið. Þeir sem eru 18 til 24 ára kvíða jólum mest en ekki er marktækur munur á kvíða kynjanna.
Þá var spurt um sókn landsmanna á jólahlaðborð og jólatónleika á aðventunni, sem og um boð um jólin.
Í ljós kom að rúmur helmingur (53,6%) Íslendinga fer á hlaðborð fyrir jólin, slétt 31 prósent fer á jólatónleika og um 79 prósent fara í jólaboð yfir hátíðarnar.
Kjósendur Bjartrar framtíðar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fara síður en aðrir kjósendur á jólahlaðborð en eru aftur á móti líklegri til að fara á jólatónleika. Flestir kjósendur allra flokka ætla sér í jólaboð, segir í útdrætti úr könnuninni á vef Maskínu.
Könnunin var gerð af Maskínu í fyrrihluta desember 2015 meðal rúmlega 800 Íslendinga af báðum kynjum af öllu landinu á aldrinum 18 til 75 ára. Svarendur eru í Þjóðgátt Maskínu sem er viðhorfahópur Íslendinga sem safnað var með slembiúrtaki úr Þjóðskrá.