Ekki eðlilegt að sjávarútvegur beri kostnað vegna utanríkisstefnu Íslands

makkrilll.jpg
Auglýsing


Sam­tök atvinnu­lífs­ins segja að það ­megi ætla að íslensk fyr­ir­tæki í land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi verði af 15 millj­arða króna tekjum á ári vegna stuðn­ings íslenskra stjórn­valda við við­skipta­bann Evr­ópu­sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna á Rúss­land. Sá stuðn­ing­ur ­leiddi til þess að Rússar settu bann á inn­fluttn­ing á íslenskum mat­vörum í ágúst síð­ast­liðn­um.

Sam­tökin vilja að Ísland end­ur­skoð­i ­stuðn­ing sinn og segja það vera lág­marks­kröfu  að íslensk stjórn­völd skil­yrð­i á­fram­hald­andi stuðn­ing við við­skipta­bannið við það að á móti komi auk­inn mark­aðs­að­gang­ur að Evr­ópu­mark­aði fyrir sjáv­ar­af­urð­ir. „Það er ekki eðli­legt að sjáv­ar­út­veg­ur­inn beri hit­ann og þung­ann af utan­rík­is­stefnu Íslands í þessu máli.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem sam­tökin birtu á heima­síðu sinni í dag.

Auglýsing

Gunnar Bragi kann­ast ekki við óánægju

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra ­greindi frá því í við­tali við DV fyrir helgi að stuðn­ingur Íslands við við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum hefði verið end­ur­nýj­að­ur.  Í Frétta­blað­inu í dag segir að bæði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ­for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, vilj­i fara sér hægt í yfir­lýs­ingar um afstöðu Íslands gagn­vart áfram­hald­andi banni. Gunnar Bragi sagði við RÚV að hann kann­að­ist ekki við að ráð­herr­arnir væru ósáttir við yfir­lýs­ingar hans um fram­hald á við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi. „Nei, enda held ég að ef þetta væri rétt þá hlytu þeir að segja þetta við mig,“ sagði Gunnar Bragi við frétta­stofu RÚV í morg­un. 

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hafa mjög lát­ið heyra í sér vegna ákvörð­un­ar­innar á und­an­förnum dög­um. Í gær birt­ust grein­ar eftir Kol­bein Árna­son, fram­kvæmda­stjóra SFS, og Hauk Þór Hauks­son, að­stoð­ar­fram­kvæmda­stjóra þeirra, í Morg­un­blað­inu ann­ars vegar og Frétta­blað­in­u hins veg­ar, þar sem afstaðan var gagn­rýnd og sagt að stuðn­ingur Íslands í að­gerð­unum væri ein­ungis tákn­rænn. Undir væru hins vegar tug­millj­arða mark­að­ir ­með upp­sjáv­ar­fisk. Kol­beinn end­ur­tók þessa afstöðu í beinni útsend­ingu í fréttum Stöðvar 2 í gær.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins hafa hagn­ast mikið á und­an­förnum árum. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra fyrir fjár­magns­kostn­að, afskriftir og skatta á árunum 2009 til 2014 var 450 millj­arðar króna. HB Grandi, næst stærsta ­sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins og það eina sem skráð er á mark­aði, hagn­að­ist um 7,4 millj­arða króna fyrir fjár­magns­kostn­að, afskriftir og skatta á fyrstu níu ­mán­uðum þessa árs, og jókst sá hagn­aður um 15 pró­sent á milli ára.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None