Gunnar Bragi kannast ekki við óánægju annarra ráðherra

Gunnar Bragi
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra seg­ist ekki kann­ast við það að aðrir ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni séu ósáttir við yfir­lýs­ingar hans um fram­hald á við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi. „Nei, enda held ég að ef þetta væri rétt þá hlytu þeir að segja þetta við mig,“ sagði Gunnar Bragi við frétta­stofu RÚV í morg­un. 

Fram kom í Frétta­blað­inu í morgun að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra vildu báðir fara sér hægt í yfir­lýs­ingum um afstöðu Íslands til áfram­hald­andi við­skipta­þving­ana. 

Frétta­blaðið sagði sam­ráð­herra Gunn­ars Braga ósátta með afdrátt­ar­lausar yfir­lýs­ingar hans um áfram­hald­andi þátt­töku í við­skipta­þving­unum vegna inn­rásar Rússa á Krím­skaga. Ráð­herr­arnir eru sagðir ósáttir vegna þess að engin form­leg ákvörðun hafi verið tekin um fram­hald­ið. 

Auglýsing

Gunnar Bragi segir hins vegar að hann viti ekki á hvaða for­sendum það ætti að ger­ast að afstaða Íslands yrði end­ur­skoð­uð. „Það eru það miklir hags­munir í húfi fyrir Ísland að vera stuðn­ings­menn laga og reglu og mót­mæla því þegar alþjóða­lög eru brot­in.“ Ekk­ert hafi breyst frá því að rík­is­stjórnin sam­þykkti að taka þátt í þving­un­ar­að­gerð­u­m. 

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hafa mjög látið heyra í sér vegna ákvörð­un­ar­innar á und­an­förnum dög­um. Í gær birt­ust greinar eftir Kol­bein Árna­son, fram­kvæmda­stjóra SFS, og Hauk Þór Hauks­son, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra þeirra, í Morg­un­blað­inu ann­ars vegar og Frétta­blað­inu hins veg­ar, þar sem afstaðan var gagn­rýnd og sagt að stuðn­ingur Íslands í aðgerð­unum væri ein­ungis tákn­rænn. Undir væru hins vegar tug­millj­arða mark­aðir með upp­sjáv­ar­fisk. Kol­beinn end­ur­tók þessa afstöðu í beinni útsend­ingu í fréttum Stöðvar 2 í gær.

Gunnar Bragi seg­ist vera með­vit­aður um að þetta komi sér illa fyrir ákveðin byggða­lög og hann seg­ist fyrst og fremst hafa áhyggjur af því. „Ég vona að rík­is­stjórnin geti þá sam­þykkt ein­hverjar mót­væg­is­að­gerð­ir.“ Rík­is­stjórnin ætti að skoða að aðstoða sveit­ar­fé­lög. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None