Japan greiðir bætur og biðst afsökunar vegna kynlífsþrælkunar

kynlifsþrælar japan suður kórea
Auglýsing

Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Jap­ans, hefur beðist inni­legrar afsök­unar á kyn­lífs­þrælkun sem suð­ur­-kóreskar konur voru hnepptar í í seinni heim­styrj­öld­inni og segir Japan við­ur­kenna mikla ábyrgð í mál­inu. Jafn­framt mun Japan greiða bætur sem sam­svara rúmum millj­arði íslenskra króna vegna þrælk­un­ar­inn­ar. Stjórn­völd í Suð­ur­-Kóreu munu útdeila bót­unum úr sjóð­i. 

Sam­komu­lag um þetta hefur náðst á milli Jap­ans og Suð­ur­-Kóreu eftir ára­tuga umræð­ur. Málið hefur lengi verið eitt helsta deilu­mál ríkj­anna tveggja en til­kynnt var um nið­ur­stöð­una eftir fund utan­rík­is­ráð­herra í Seúl í dag. 

Allt að 200 þús­und konur voru neyddar í kyn­lífs­þrælkun við jap­anska her­menn í seinni heim­styrj­öld­inni, og tugir þús­unda þeirra voru kóresk­ar. Aðrar konur komu frá Kína, Fil­ipps­eyj­um, Indónesíu og Taí­v­an. Aðeins 46 konur frá Suð­ur­-Kóreu, sem neyddar voru í kyn­lífs­þrælk­un, eru enn á líf­i. 

Auglýsing

Jap­anir hafa haldið því fram að málið hafi verið til lykta leitt með sam­komu­lagi árið 1965, þar sem diplómat­ískum tengslum ríkj­anna var komið á og Japan veitti Suð­ur­-Kóreu efna­hags­að­stoð og lán. Jap­anir báð­ust afsök­unar á mál­inu í yfir­lýs­ingu þáver­andi stjórn­valda árið 1993, en Suð­ur­-Kóreu­búar hafa verið tregir til að taka afsök­un­ar­beiðn­um, m.a. vegna þess að ekki hefur verið talið að Jap­anir við­ur­kenni laga­lega ábyrgð sína og ekki gengið nógu langt í að biðj­ast afsök­un­ar. 

Nú munu stjórn­völd í Suð­ur­-Kóreu telja mál­inu end­an­lega lokið, ef japönsk stjórn­völd standa við sitt. Hluti af sam­komu­lag­inu er að bæði ríki lofa að gagn­rýna ekki hvort annað á alþjóða­vett­vangi vegna máls­ins, og Suð­ur­-Kóreu­menn ætla að íhuga að fjar­lægja styttu sem reist var fyrir utan sendi­ráð Jap­ans í Seúl fyrir fjórum árum, og táknar kon­urn­ar. 

Frá fyrstu mótmælum kvennanna sem hnepptar voru í kynlífsánauð, árið 1992.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None