Meira en ein og hálf milljón G-mjólkurröra sem fæstir nota

Framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs MS segir 250 millilítra umbúðir G-mjólkurinnar afar óhentuga fyrir neytendur. Meira en ein og hálf milljón ferna voru seldar í fyrra, allar með rörum sem fæstir nota. Ný pökkunarvél kostar nokkur hundruð milljónir.

7DM_0704_raw_0910.JPG
Auglýsing

MS seldi á síð­asta ári rúm­lega 1,6 milljón stykki af 250 milli­lítra G-mjólk­ur­fernum með röri. Um er að ræða bæði venju­lega G-mjólk og létta. 

Ólíkt flestum öðrum mjólk­ur­af­urðum sem seldar eru í litlum umbúð­um, kemur G-mjólkin með röri á hlið­inni eins og hún sé ætluð til drykkj­ar, eins og ávaxta­safi eða Kókó­mjólk. En lang­flestir nota mjólk­ina hins vegar út í kaffi. 

Jón Axel Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri sölu- og mark­aðs­sviðs MS, segir pökk­un­ar­vél G-mjólk­ur­innar afar óhent­uga fyrir vör­una.  

Auglýsing

Jón Axel Pétursson, sölu- og markaðsstjóri MS.„Þetta er alveg skelfi­leg vél til að nota í þessa vöru. Það er ömur­legt fyrir okkar neyt­endur að hún sé að fram­leiða þetta svona,” segir hann. „En það hefur ekki verið fjár­hags­legur grund­völlur fyrir því að kaupa nýja bara í þessa fram­leiðslu, þar sem kostn­aður við svona pökk­un­ar­vélar hleypur á hund­ruðum millj­óna. Ódýrasta vélin kostar um 100 millj­ón­ir.”

Að sögn Jóns Axels er það sem flækir málið enn frekar varð­andi end­ur­nýjun á pökk­un­ar­vél er að G-mjólk er með mun lengra geymslu­þol en aðrar mjólk­ur­vör­ur, eða sex mán­uði. Hún er háhita­með­höndluð sem gerir allan búnað tengda henni dýr­ari. 

„Það er til fersk mjólk í 250 milli­lítra fernum með tappa, sem er líka hægt að nota í kaffi,” segir Jón Axel. „En flestir kjósa þessa því hún þarf ekki að geym­ast í kæli­skáp.” 

Sumir kann­ast við að rekast á ferða­menn á förnum vegi með G-mjólk­ur­fernu í hönd sem þau drekka af bestu lyst úr rör­inu sem fylgir með. Jón Axel segir það vissu­lega tíðkast víða erlendis að G-mjólk sé drukk­in, en hér á landi er hún nær ein­vörð­ungu notuð í kaffi. Og rörið oftar en ekki notað til að sprauta mjólk­inni í boll­ann, með mis­jöfnum afleið­ing­um. Þá getur líka reynst snúið að opna fern­una svo vel fari. 

„Það er vesen sem allir kann­ast við,” segir Jón Axel. 

Kaffi­rjóm­inn frá MS sem og rjóm­inn í 250 milli­lítra umbúðum koma ekki í fernum með rör­um. Jón Axel segir þetta vissu­lega vert skoð­un­ar. 

„Við höfum bara aldrei fengið svona ábend­ingu áður,” segir hann. „Og munum taka hana til greina.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None