Eggert B. Guðmundsson ráðinn forstjóri ReMake Electric

ReMake
Auglýsing

Egg­ert Bene­dikt Guð­munds­son hefur verið ráð­inn for­stjóri ReMake Elect­ric ehf. og tek­ur hann við starf­inu nú þeg­ar. Á und­an­förnum árum hefur ReMake náð góðum árangri í vöru­þróun og er orku­stjórn­un­ar­kerfið eTact­ica leið­andi á sínu sviði á heims­vísu. ReMake hefur náð góðum árangri í sölu inn­an­lands. 

Framundan er „stór­aukin áhersla á sölu- og mark­aðs­starf á erlendum mörk­uð­um“ og mun Egg­ert Bene­dikt leiða þá mark­aðs­sókn, að því er segir í til­kynn­ingu.

Hjá ReMake hefur verið þróuð ein­stök og afar öflug lausn fyrir orku­stjórnun sem hentar sér­stak­lega vel fyrir fyr­ir­tæki og fast­eigna­fé­lög. Verk­efnið framundan er að hraða vexti erlendis með því að ­stækka net sam­starfs­að­ila og auka skil­virkni í sölu og ég er afar ánægður með­ að fá jafn reyndan og traustan stjórn­anda og Egg­ert Bene­dikt til að leiða þá vinnu“, segir Þórður Magn­ús­son stjórn­ar­for­maður ReMake Elect­ric ehf.

Auglýsing

Að sögn Egg­erts Bene­dikts er þetta spenn­andi verk­efni, að því er fram kemur í til­kynn­ingu. „ReMake býður lausnir sem hjálpa fyr­ir­tækjum að draga úr orku­notkun og auka rekstr­ar­ör­ygg­i.  Þetta hjálpar því m.a. til við að draga úr mengun og ­draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.  Alls staðar í heim­inum er nú ­leit­ast við að geta staðið við mark­mið og skuld­bind­ingar sem gefin voru á Par­ísa­ráð­stefn­unni í lok sl. ár.  Við munum leggja meg­in­á­herslu á upp­bygg­ingu sölu­starfs­ins, því tækni­legar lausnir ReMake eru orðnar vel þró­að­ar­ og ReMake hefur alla burði til að verða leið­andi afl í orku­stjórnun í heim­in­um.  Hjá ReMake vinnur afburða­fólk. Ég er því fullur til­hlökk­unar að takast á við þetta verk­efni, enda nýt­ist hér reynsla mín af raf­magns­verk­fræð­i, ­mark­aðs­málum og fyr­ir­tækja­rekstri.

Ína Björk Hann­es­dóttir sem leitt hefur starf ReMake Elect­ric und­an­farin miss­eri starfar á­fram sem rekstr­ar­stjóri félags­ins.

Egg­ert Bene­dikt Guð­munds­son lauk meist­ara­prófi í raf­magns­verk­fræð­i frá háskól­an­um í Karls­ru­he, Þýska­landi árið 1990. Hann vann við rann­sóknir og þró­un hjá ­Ís­lenska járn­blendi­fé­lag­inu hf. næstu fimm árin, en hélt þá til ­náms við IES­E við­skipta­há­skól­ann í Barcelona og lauk þar MBA ­prófi vorið 1997.  Egg­ert vann við mark­aðs­mál og við­skipta­þró­un hjá Phil­ips Elect­ron­ics frá 1997-2004, fyrst í Belgíu og ­síðan í Kali­forn­íu. Árin 2004 til 2012 ­starfað­i hann hjá HB Granda, fyrst sem mark­aðs­stjóri, en sem for­stjóri frá­ ­febr­ú­ar 2005.  Frá HB Granda lá leiðin til N1, þar sem Egg­ert var for­stjóri frá 2012-2015.

Á bak við ReMake Elect­ric standa styrkir bak­hjarl­ar. Auk stofn­and­ans Hilmis Inga Jóns­sonar eru helstu eig­endur félags­ins Eyrir Sprotar slhf. og Nýsköp­un­ar­sjóð­ur­ At­vinnu­lífs­ins. Aðal­á­herslur í frek­ari upp­bygg­ingu ReMake Elect­ric eru á sölu- og mark­aðs­starf félags­ins, segir í til­kynn­ingu.

ReMa­ke El­ect­ric gerir fyr­ir­tækjum kleift að skilja og bæta orku­notkun sína.  eTact­ica lausnin mæl­ir, vaktar og skrá­ir raf­magns­notkun niður á hverja grein í raun­tíma og krefst ein­ungis lág­marks­ við­bótar upp­setn­ingar á bún­aði. Lausn­in ­gerir við­skipta­vinum kleift að bæta orku­nýt­ingu og auka rekstr­ar­ör­yggi ásam­t því að mæta sjálf­bærni­kröfum og lækka kostn­að. ReMake Elect­ric var stofnað árið 2009. Höf­uð­stöðvar ReMake eru á Ísland­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None