Fyrrverandi fréttastjóri vinnur að samantekt um Al-Thani málið

Freyr Einarsson, fyrrverandi fréttastjóri hjá 365, vinnur nú að gerð samantektar fyrir Almenna bókafélagið um Al-Thani málið. Ekki er ljóst hvort úr verði bók eða skýrsla.

Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson fyrir dómi í Al-Thani málinu.
Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson fyrir dómi í Al-Thani málinu.
Auglýsing

Freyr Ein­ars­son, fyrr­ver­andi yfir­maður sjón­varps, frétta og íþrótta hjá 365, vinnur nú að því að taka saman gögn tengd Al Than­i-­mál­inu fyrir Almenna bóka­fé­lag­ið. Að sögn Freys er ekki búið að ákveða hvort úr verði bók eða skýrsla.

„Ég hef verið að safna saman upp­lýs­ingum tengdu þessu máli og það liggur ekk­ert fyrir ennþá hvað verður úr því,” segir Freyr. „Ég hef bara verið að taka saman gögn og reyndar taka við­töl við menn sem tengj­ast mál­inu. Þetta er á algjöru frum­stigi og er algjör­lega ómót­að. Kannski verður þetta ljós­rituð skýrsla í fáeinum ein­tökum eða bók.”

Aðspurður hvort hann sé að vinna að mál­inu fyrir þá Kaup­þings­menn sem nú sitja í fang­elsi á Kvía­bryggju eftir Al-T­hani mál­ið, þver­tekur Freyr fyrir það. Hann sé að vinna fyrir Almenna bóka­fé­lag­ið.

Auglýsing

Hann er búinn að taka við­tal við Ragnar H. Hall, sem var lög­maður Ólafs Ólafs­son­ar, eins stærsta eig­anda Kaup­þings, en sagði sig frá mál­inu þar sem hann taldi að réttur Ólafs til rétt­látrar máls­með­ferðar og jafn­ræðis við ákæru­valdið við með­ferð máls­ins fyrir dómi hafi ítrekað verið þver­brot­inn. Það sama gerði Gestur Jóns­son, verj­andi Sig­urðar Ein­ars­son­ar, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns Kaup­þings.

Freyr EinarssonFreyr er búinn að vera að skanna dóms­skjölin í mál­inu, sem eru um 10.000 tals­ins. „Þau eru ótrú­lega áhuga­verð og skemmti­leg. Það er auð­velt að gleyma sér í þessu,” segir hann.

For­stöðu­maður útgáfu Almenna bóka­fé­lags­ins er Jónas Sig­ur­geirs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings. Jónas skrif­aði grein í Frétta­blaðið fyrr í mán­uð­inum þar sem hann gagn­rýndi dóms­kerfið fyrir dóma yfir for­stöðu­mönnum föllnu bank­anna og spyr hvort um væri að ræða skipu­lagða aðför. „Engum ætti að koma á óvart að þessi hópur muni ekki sætta sig við þessa fang­els­is­dóma og með­ferð­ina sem hann hefur fengið innan rétt­ar­kerf­is­ins. Í raun hljóta þeir einnig, sem hóp­ur, að kom­ast að þeirri einu rök­réttu nið­ur­stöðu að þeir séu fórn­ar­lömb skipu­legrar aðfar­ar.”

Aðrir eig­endur útgáf­unnar eru Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son pró­fess­or, Baldur Guð­laugs­son, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, Kjartan Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Þór­dís Edwald, en eig­in­maður henn­ar, Ármann Þor­valds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í London, tók þátt í stofnun útgáf­unnar í byrjun árs 2012.

Meðal bóka sem Almenna bóka­fé­lagið hefur gefið út eru „Í krafti sann­fær­ingar - saga lög­manns” eftir Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, „And­er­sen skjöl­in: Rann­sóknir eða ofsókn­ir?” eftir Egg­ert Skúla­son, rit­stjóra DV, „Ices­ave samn­ing­arnir - afleikur ald­ar­inn­ar?” eftir Sig­urð Má Jóns­son, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­inn­ar, og „Bús­á­halda­bylt­ing­in: Sjálf­sprottin eða skipu­lögð?” eftir Stefán Gunnar Sveins­son, blaða­mann á Morg­un­blað­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None