Trúleysi ungra Íslendinga vekur heimsathygli

Trúleysi í fjölmiðlum
Auglýsing

Nið­ur­stöður könn­unar Sið­menntar um trú og lífs­skoð­anir Íslend­inga hafa vakið athygli víða um heim. Sam­kvæmt kön­unn­inni trúir eng­inn undir 25 ára að Guð hafi skapað alheim­inn, hvort sem við­kom­andi taldi sig krist­inn eður ei.

Mikið var fjallað um könn­un­ina í fréttum hér­lend­is, meðal ann­ars að hlut­fall þeirra sem telja sig trú­aða á Íslandi hafi aldrei verið jafn lágt, eða 46 pró­sent, níu af hverjum tíu fram­sókn­ar­mönnum eru kristnir og að lang­flestir Íslend­ingar eru hlynntir líkn­andi dauða. Einnig kom fram að Íslend­ingar undir 25 ára aðhyll­ast ekki kenn­ingar Bibl­í­unn­ar. 

Stórir erlendir miðlar taka málið upp

Und­an­farna daga hafa ýmsir erlendir miðlar fjallað um nið­ur­stöð­urnar og þá sér­stak­lega þá stað­reynd að ungir Íslend­ingar virð­ast vera þess full­vissir að Guð hafi ekki skapað heim­inn.

Auglýsing

Banda­ríska dag­blaðið Was­hington Post slær upp fyr­ir­sögn­inni: Í þessu landi er bók­staf­lega ekk­ert kristið ung­menni sem trúir því að Guð hafi skapað heim­inn.

„Ef þú færð tæki­færi til að ræða við unga Íslend­inga um trú­ar­skoð­anir þeirra mun nokkuð koma þér á óvart. Nákvæm­lega núll pró­sent svar­enda nýrrar könn­unar segj­ast trúa því að Guð hafi skapað heim­inn,” segir í byrjun frétt­ar­inn­ar. Þá er greint frá Gallup könnun frá árinu 2014 í Banda­ríkj­unum þar sem kom fram að 28 pró­sent Banda­ríkja­manna á aldr­inum 18 til 29 ára trúðu því að Guð hafi skapað mann­inn í núver­andi mynd ein­hvern tím­ann á síð­ustu 10.000 árum.

„Guð­laus­asta land Evr­ópu"

Írska blað­ið Belfast Tel­egraph segir einnig frá könn­un­inni og sömu nið­ur­stöðum undir fyr­ir­sögn­inni: Eng­inn undir 25 ára á Íslandi trúir að Guð hafi skapað heim­inn. Í frétt­inni er síðan vísað í hinar ýmsu umræður um málið á net­inu og orð Francis páfa um að „Guð væri ekki töfra­maður með sprota" og að kenn­ingin um Mikla­hvell væri sönn. Það sama gerir breska blaðið Independent sem fjallar um málið á tveimur vef­svæðum sín­um, á öðrum stað undir fyr­ir­sögn­inni: Þetta er Guð­laus­asta land Evr­ópu

Mik­ill fjöldi vef­síðna sem meðal ann­ars snúa að trú­leysi og gagn­rýni á trú­ar­brögð hafa einnig greint frá nið­ur­stöðum könn­un­ar­inn­ar. Dæmi er að finna á síðum The Free Thinker, Patheos, Reddit, Skept­ical Sci­ence, frétta­síð­unni Smas­hing Life og tölvu­leikjaum­ræðu­síð­unni NeoGAF.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None