Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla hefur sagt upp 14 starfsmönnum í vegna endurskipulagningar fyrirtækisins. Þetta er gert í kjölfar kaupa bandaríska leikjarisans Glu Mobile á stórum hlut í fyrirtækinu. Stefnt er að sameiningu Plain Vanilla og Glu Mobile á næstu 15 mánuðum, er fram kemur í tilkynningu. Starfsmenn Plain Vanilla hér á landi hafa verið á bilinu 70-80. Meginþróun QuizUp verður áfram hér á landi.
Verður að skila hagnaði
Glu og Plain Vanilla ætla í sameiningu að einblína á þróun QuizUp spurningaþáttarins, en frumsýning hans verður í Bandaríkjunum og Bretlandi næsta haust og talið er að spilurum leiksins muni enn fjölga í kjölfarið. Hingað til hefur áhersla fyrirtækisins verið á að fjölga notendum óháð tekjum og var tekin meðvituð ákvörðun um að forðast beinar auglýsingar innan leiksins. Þeirri stefnu hefur nú verið breytt og áhersla er lögð á að fyrirtækið skili hagnaði í aðdraganda væntanlegrar sameiningar Plain Vanilla við Glu Mobile, innan sex mánaða.
Þátturinn sýndur á besta tíma
Fram kemur í tilkynningunni að til umræðu sé hjá sjónvarpsstöðinni NBC að þátturinn verði á dagskrá beint á eftir „Sunday Night Football“, einu vinsælasta sjónvarpsefni í Bandaríkjunum með allt að 40 milljón áhorfendur.
Haft er eftir Þorsteini B. Friðrikssyni, forstjóra Plain Vanilla, í tilkynningunni að Glu Mobile búi yfir mikilli þekkingu á öflun tekna af vinsælum netleikjum.
„Fyrirtækið framleiðir fjölmarga slíka, þ.á.m. þekktan leik sem byggir á lífi raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian. Við höfum nú þegar byrjað að prófa að birta auglýsingar gagnvart smærri hópi QuizUp notenda og viðbrögðin hafa verið jákvæð sem gefur okkur tilefni til að ætla að það takist að Plain Vanilla skili hagnaði í ár. Þessi er stefnubreyting er hluti af samstarfi okkar við Glu Mobile og ef allt gengur vel munu fyrirtækin tvö hugsanlega sameinast. Ég tel að sameiningin, ef af yrði, væri mjög jákvæð, bæði fyrir framtíðarþróun Plain Vanilla en einnig fyrir þá mörgu fjárfesta sem lagt hafa okkur til fé í þessa uppbyggingu. Það eru ríflega 4 milljarðar króna sem komið hafa frá fjárfestum frá stofnun fyrirtækisins og sem nýttir hafa verið til að ráða margt hæfasta tæknifólk á Íslandi. Þetta er öflugt fólk sem öðlast hefur mikla reynslu á skömmum tíma. Til lengri tíma litið styrkjum við hins vegar stöðu fyrirtækisins, og áframhaldandi veru þess hér á landi, með því að leggja áherslu á þau svið þar sem við stöndum Glu Mobile framar.“