Utanríkisráðuneytið styrkti líka mynd um flóttamenn

Utanríkisráðuneytið styrkir mynd um komu flóttamanna um 3 milljónir, eins og ríkisstjórnin. Kvikmyndagerðarmaðurinn er fyrrverandi formaður flóttamannaráðs, en líka fyrrverandi aðstoðarmaður og varaþingmaður í Framsókn.

stjornarrad.jpg
Auglýsing

Heim­ild­ar­mynd um mót­töku flótta­mann­anna frá Sýr­landi hefur fengið styrki bæði frá rík­is­stjórn­inni og þró­un­arvsam­vinnu­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Hvor styrkur um sig eru þrjár millj­ónir króna. 

Auglýsing

Eins og Kjarn­inn greindi frá í gær bar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra til­lög­una upp á fundi rík­is­stjórnar í gær og var hún sam­þykkt ein­róma. Það er fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Skotta Film sem fram­leiðir mynd­ina með Árna Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi for­mann Flótta­manna­ráðs, í far­ar­broddi. Árni er líka fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Páls Pét­urs­sonar og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. 

Árni segir við RÚV að hann hafi sótt um styrki hjá nokkrum menn­ing­ar­sjóðum en hafi ekki sótt um styrk úr kvik­mynda­sjóði Kvik­mynda­mið­stöðvar þar sem slíkt hefði tekið of langan tíma. Ef hann hefði haft tíma hefði hann hins vegar gert það. 

Kol­brún Hall­dórs­dótt­ir, for­seti Banda­lags íslenskra lista­manna og fyrr­ver­andi ráð­herra VG, setur spurn­inga­merki við styrk­veit­ingu rík­is­stjórn­ar­innar sem hún segir orka tví­mæl­is. „Rík­is­stjórn­inni er auð­vitað í sjálfs­vald sett hvernig hún fer með sína fjár­muni - það hefði hins vegar verið betra að setja þessa umsókn í fag­legan far­veg,“ segir hún við RÚV. For­maður félags kvik­mynda­gerð­ar­manna, Hrafn­hildur Gunn­ars­dótt­ir, segir styrk­inn óvenju­legan og greini­legt að málið sé mik­il­vægt fyrir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið. Hún segir að leitað hafi verið til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins til að styrkja heim­ild­ar­mynda­röð­ina Öldin henn­ar, en sá styrkur fékkst ekki. 

Jóhannes Þór Skúla­son, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, sagði við Kjarn­ann í gær að verk­efnið hafi verið að gerj­ast í ein­hvern tíma.

„Árni fór til Líbanon og hefur fylgt fólk­inu eft­ir, þá sér­stak­lega þeim hópi sem fór til Akur­eyr­ar,” segir hann. „Hug­myndin er að gera heim­ild­ar­mynd um mót­töku og aðlögun þess­ara hópa hér á Íslandi og hvernig aðlögun geng­ur.”

Að sögn Jóhann­esar stendur einnig til að gera kennslu­mynd­bönd fyrir skóla og nýta verk­efnið á fleiri svið­um. Áætlað er að það taki um ár að gera.

Jóhannes bendir enn fremur á í sam­tali við RÚV að rík­is­stjórnin hafi áður lagt sitt af mörkum til menn­ing­ar­verk­efna - til að mynda fékk barna­óperan Bald­urs­brá styrk upp á 1,5 milljón fyrir sýn­ingu. Rík­is­stjórnin styrkti einnig óper­una Ragn­heiði eftir Gunnar Þórð­ar­son um þrjár millj­ónir þannig að hægt væri að taka hana upp.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er sjálfur á leið til Líbanon, þar sem hann ætlar að kynna sér aðstæður flótta­manna og starf stofn­ana Sam­ein­uðu þjóð­anna og Rauða kross­ins á svæð­inu. Síðar í vik­unni fer hann svo til London á sér­stakan leið­toga­fund um mál­efni Sýr­lands. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None