Árni Páll vill vera formaður áfram

Framkvæmdastjórn Samfylkingar vinnur nú að heildarendurskoðun á lögum flokksins. Ástæðan er meðal annars tímasetning landsfunda og formannskjörs. Árni Páll Árnason vill vera formaður áfram. Formaður framkvæmdastjórnar vill henda lögunum og skrifa ný.

Auglýsing

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar, seg­ist gera ráð fyrir að gefa kost á sér áfram sem for­maður ef komi til alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um for­ystu í flokkn­um.

„Ég er til í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu og for­manns­kosn­ingu hvenær sem er,” segir Árni Páll í sam­tali við Kjarn­ann. „Stofn­anir flokks­ins meta það og ég mun ekki hafa afskipti af því.”

Umræðan staðið frá síð­asta lands­fundi

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar vinnur nú að end­ur­skoðun á lögum flokks­ins, meðal ann­ars til að geta átt mögu­leika á að breyta tíma­setn­ingum á lands­fund­um. Umræða hefur skap­ast innan flokks­ins um að flýta kom­andi lands­fundi, en sam­kvæmt lögum verður að halda þá á tveggja ára fresti. Einnig er verið að skoða hvort hægt sé að flýta for­manns­kjöri í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu.

Auglýsing

Sema Erla Serdar, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir að umræðan hafi staðið yfir frá síð­asta lands­fundi. Þá vann Árni Páll for­manns­slag á móti Sig­ríði Ingi­björgu Inga­dóttur með einu atkvæð­i. 

„Í fyrra var lögð fram til­laga í fram­kvæmda­stjórn um að lands­fundur yrði hald­inn haustið 2016. En það náði ekki lengra því við erum með þessi löngu og ítar­legu lög sem til­greina að lands­fund skuli halda á tveggja ára fresti. Þar lá vand­inn,” segir hún. „En í kjöl­farið skoð­uðum við að það er hægt að halda lands­fund snemma árið 2017 en hægt væri að halda alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um for­mann 2016.”

Þungt að kyngja ítrek­uðum skoð­ana­könn­un­um 

Ólína Kjer­úlf Þor­varð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar, sagði í gær að hún vildi flýta lands­fundi flokks­ins um hálft ár og þar með for­manns­kosn­ingu. Ástæðan er arfa­slakt fylgi Sam­fylk­ingar í ítrek­uðum skoð­ana­könn­unum und­an­farin miss­eri, en flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með um 10 pró­senta fylgi. Hún sagði löm­unar­á­stand ríkja meðal Sam­fylk­ing­ar­innar og eng­inn af því hæfa fólki innan flokks­ins vilji stíga fram og bjóða sig fram til for­manns á meðan svo er.

Árni Páll segir flokk­inn hafa verið í langvar­andi lægð.

„Það er ekk­ert sem hreyf­ist upp á við hjá okk­ur, frekar en öðrum flokk­um. Þetta er algjör kyrr­staða og hefur verið við­var­andi frá síð­asta lands­fund­i.”

Sema segir málið hafa hangið allt of lengi yfir flokkn­um.

„Hlut­irnir verða bara erf­ið­ari og erf­ið­ari og það er þungt að þurfa að kyngja hverri skoð­ana­könnun á fætur annarri með 10 pró­senta fylg­i,” segir hún. „Nú erum við að láta meta þessi lög til að sjá hvað við getum gert.”

For­maður verður að hafa skýrt umboð

Heim­ild er fyrir því að boða til auka­lands­fund­ar, en á honum má þó ekki kjósa nýjan for­mann. Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar mun í kjöl­farið negla niður dag­setn­ingar og sjá hvort hægt sé að flýta for­manns­kjöri með alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu eða lands­fundi. Vanda­málið er að það þarf að kalla saman lands­fund til að breyta lög­um. Að sögn Semu eru lögin óþarf­lega ítar­leg, hátt í 30 blað­síð­ur, og erfitt sé fyrir flokk­inn að vinna með svo nið­ur­njörvað starfs­um­hverfi. Fram­kvæmda­stjórnin ætli að klára málið sem fyrst.

„Það þarf að útrýma þessum lögum og skrifa ný,” segir hún. „Það væri löngu búið að afgreiða þetta mál ef ekki væri fyrir lög­in. Næsti vetur er kosn­inga­vetur og það væri óeðli­legt ef lögin koma í veg fyrir að sá sem leiði flokk­inn í gegn um næstu kosn­ingar hafi skýrt umboð til þess.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None