Samherji efst á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki

Samherji
Auglýsing

Sam­herji trónir í efsta ­sæti á lista Credit­info yfir fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki líkt og síð­ustu fjög­ur ár. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Credit­in­fo. Sam­herji hagn­að­ist um rúm­lega ell­efu millj­arða króna á árinu 2014.

Á eftir Sam­herja koma síðan fyr­ir­tækin Norð­ur­ál, Icelandair Group, Össur og Stál­skip. Credit­info veitti fram­úr­skar­and­i ­fyr­ir­tækjum við­ur­kenn­ingar í Hörpu í dag fyrir rekstr­ar­árið 2014, að við­stödd­um ­Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Að þessu sinni fengu 682 fyr­ir­tæki við­ur­kenn­ingu eða um tvö pró­sent af öllum skráðum fyr­ir­tækjum á Ísland­i. 

Fram­úr­skar­and­i ­fyr­ir­tækjum hefur fjölgað veru­lega en Credit­info hefur birt lista fram­úr­skar­and­i ­fyr­ir­tækja frá árinu 2010 en þá voru ein­ungis 178 félög á list­an­um.



„Þessi fyr­ir­tæki eiga það sam­merkt að sýna stöð­ug­leika í rekstri og eru lík­leg til að efla hag hlut­hafa og fjár­festa,“ segir í til­kynn­ingu frá Credit­in­fo.

Auglýsing

Sér­stakir sam­starfs­að­ilar Credit­in­fo ­vegna Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja eru Sam­tök atvinnu­lífs­ins, Sam­tök iðn­að­ar­ins, ­Sam­tök versl­unar og þjón­ustu, Félag kvenna í atvinnu­líf­inu og Við­skipta­ráð Ís­lands.

Bjarni Bene­dikts­son ávarp­að­i ­gesti og sagði að mikið hefði breyst í ytra umhverfi fyr­ir­tækja á síð­ustu tveimur ára­tug­um. Hann tal­aði um mik­il­vægi þess fyrir ein­stak­linga og ­fyr­ir­tæki að safna upp­lýs­ingum um rekstr­ar­stöðu fyr­ir­tækja. „Vax­andi fjöld­i ­fyr­ir­tækja á lista Credit­info sýnir að við Íslend­ingar erum að rétta úr kútn­um,“ ­sagði fjár­mála­ráð­herra, að því er fram kemur í til­kynn­ingu Credit­in­fo.

Enn­fremur nefndi hann að nýir geirar væru að koma sterkir inn. „Það skiptir máli að nýjar stoðir styðji við efna­hags­lífið í land­in­u,“ ­sagði Bjarni .

Fjár­mála­ráð­herra afhenti fyr­ir­tækj­unum Kjarn­epli, LS Retail og Hög­um, sér­stök verð­laun. Kjarn­epli fékk við­ur­kenn­ingu fyrir að vera yngsta fyr­ir­tækið á list­anum en það var stofnað í sept­em­ber 2012, Hag­ar ­fyrir það að vera efst á lista yfir þau fyr­ir­tæki sem koma ný inn í ár en ­fé­lagið er í níunda sæti á list­anum og LS Retail fékk við­ur­kenn­ingu fyrir að ­fær­ast upp um flest sæti á milli ára eða um 387 sæti, félagið er nú í 69. sæti á list­an­um. 

Sam­kvæmt grein­ing­u Credit­info á rekst­ar­ár­inu 2014 þá hefur dregið veru­lega úr van­skilum félaga. Í bygg­inga­starf­semi og mann­virkja­gerð fer hlut­fallið úr 30% frá árinu 2012 niður í 20% á árinu 2014. Enn­fremur er tölu­verð aukn­ing ­fyr­ir­tækja í fast­eigna­leigu á list­anum og van­skila­hlut­fallið fer einnig ört ­lækk­andi. Einnig fjölgar af félögum í ferða­þjón­ustu á list­anum og afkoman í þeim geira fer batn­andi. Lög­að­il­ar í hluta­fé­laga­skrá hér­lendis eru 35.780, af þeim eru 5072 í van­skil­um.

„Það er mjög jákvætt fyr­ir­ at­vinnu­lífið að fyr­ir­tækjum fjölgi á list­an­um, í ár bæt­ast við rúm­lega 100 ný ­fyr­ir­tæki. Þessi fyr­ir­tæki byggja á sterkum stoðum og eru ekki lík­leg til að ­skapa kostnað fyrir sam­fé­lag­ið. Það fel­ast því mikil verð­mæti í þessum ­fyr­ir­tækjum fyrir sam­fé­lagið í heild sinni. Það er ánægju­legt að sjá að við­ur­kenn­ing­in sé búin að öðl­ast sess í atvinnu­líf­inu,“sagði Brynja Bald­urs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Credit­info á Íslandi.

Þau félög sem fá við­ur­kenn­ingu Credit­info sem fram­úr­skar­andi þurfa að upp­fylla viss skil­yrði er varða rekstur og stöðu þeirra. Félögin þurfa að vera skráð hluta­fé­lög, hafa skilað árs­reikn­ingum síð­ustu þriggja ára, enn­fremur þurfa líkur á alvar­leg­um van­skilum að vera undir 0,5% og félögin þurfa sýna fram á rekstr­ar­hagn­að ­síð­ustu þriggja ára, að því er fram kemur í til­kynn­ingu Credit­in­fo. Jafn­framt þarf eig­in­fjár­hlut­fall félag­anna að vera 20% eða meira þrjú rekstr­arár í röð og eignir þurfa að vera 80 millj­ónir eða meira þrjú ár í röð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None