Vilja koma í veg fyrir útilokun heillar kynslóðar Sýrlendinga

Sigmundur Davíð fundaði með yfirmönnum Flóttamannahjálpar SÞ í gær.
Sigmundur Davíð fundaði með yfirmönnum Flóttamannahjálpar SÞ í gær.
Auglýsing

Leið­tog­ar víða að úr heim­inum koma saman í London á morgun til þess að ræða flótta­manna­vand­ann vegna stríðs­ins í Sýr­landi. Sig­mund­ur Da­víð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra verður á ráð­stefn­unn­i, en hann fer til London frá Líbanon, þar sem hann hefur und­an­farna daga kynnt sér aðstæður flótta­manna.



Mark­mið­ið ­með ráð­stefn­unni á morgun er að safna níu millj­örð­u­m ­Banda­ríkja­dala fyrir sýr­lenska flótta­menn og koma í veg fyrir að ­stétt ómennt­aðra, atvinnu­lausra og rót­lausra Sýr­lend­inga fest­ist í sessi í ríkj­unum sem eiga landa­mæri að Sýr­landi. 4,6 millj­ónir Sýr­lend­inga hafa flúið til nágranna­ríkj­anna. Skipu­leggj­endur ráð­stefn­unnar vilja að meg­in­þungi hjálp­ar­að­stoð­ar í þessum löndum fær­ist frá mat­ar­gjöfum og til þess að skapa vinnu- og mennt­un­ar­tæki­færi fyrir Sýr­lend­inga í Líbanon, Tyrk­landi og Jórdan­íu.

Auglýsing



Leið­tog­ar Bret­lands, Þýska­lands, Nor­egs og Kúvæt standa fyrir fund­inum á morg­un. Guar­dian greinir frá því í dag að bresk stjórn­völd hafi áttað sig á því að aukin hætta sé á því að flótta­menn gangi til liðs við öfga­hópa eða gef­ist upp á bið­inni og hefji langa ferð til Evr­ópu ef þeim er ekki boð­ið ­upp á betra líf bæði innan og utan flótta­manna­búða. Þá hafi skiln­ingur einnig auk­ist á því að ríkin í nágrenni Sýr­lands ­geti ekki borið allar byrð­arnar ein án miklu meiri hjálp­ar.



For­svars­menn ráð­stefn­unnar vilja að mark­mið þessa árs verði að koma einn­i milljón Sýr­lend­inga í skóla og tug­þús­undum í vinnu með því að veita atvinnu­leyfi. Ríkin í kringum Sýr­land hafa upp­lif­að ­miklar breyt­ingar á vinnu­mark­aði með inn­komu flótta­manna og hafa verið treg til að veita atvinnu­leyfi.



UN­ICEF, ­barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna, hefur sagt að 1,4 millj­arð ­Banda­ríkja­dala þurfi til þess að hjálpa börnum í Sýr­landi og ­sýr­lenskum börnum ann­ars stað­ar.



Flótta­manna­ráð Nor­egs hefur gefið út ýmsar tölur í til­efni af ráð­stefn­unni á morg­un. Meðal ann­ars kemur þar fram að 700 þús­und Sýr­lend­ing­ar ­séu ólög­legir í Líbanon, sem geri þeim erfitt fyrir að kom­ast í skóla eða fá atvinnu­leyfi. 250 þús­und manns eru talin óskráð í Jórdan­íu, og 70% sýr­lenskra flótta­manna í þessum tveim­ur ­ríkjum búa við mikla fátækt. 200 þús­und skóla­börn í Líbanon ­ganga ekki í skóla, og í Jórdaníu eru fjögur af hverjum tíu flótta­börnum ekki í skóla.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None