Ákvörðun um landsfund tekin á miðvikudag

Framkvæmdastjórn Samfylkingar ákveður dagsetningu landsfundar flokksinsað öllum líkindum á miðvikudag. „Kominn tími að klára þetta mál," segir formaður framkvæmdastjórnar.

Árni Páll Árnason
Auglýsing

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar ákveður að öllum lík­indum á mið­viku­dag hvort lands­fundi verði flýtt og þar með for­manns­kjöri með alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu. Tíma­setn­ing lands­fundar verði þá ákveðin að sama skapi. 

Sema Erla Serdar, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar, segir að vegna laga flokks­ins sé óljóst hvort hægt verði að flýta lands­fundi og halda hann á þessu ári.  

„Við erum að láta meta lög flokks­ins svo ákvörð­unin sem tekin verður stang­ist ekki á við þau,” segir hún. 

Auglýsing

Hvenær sem lands­fundur verður boð­aður geta félags­menn farið fram á alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um for­mann. Sam­kvæmt Semu getur sú atkvæða­greiðsla farið fram hvenær sem er, þó eigi síðar en 45 dögum fyrir lands­fund. 

„Lík­legt er að sú krafa mun koma fram strax og tíma­setn­ing lands­fundar hefur verið ákveðin og hann boð­að­ur,” segir hún og bætir við að umræðan um for­manns­kjör hafi staðið lengi yfir, bæði á meðal flokks­manna og innan fram­kvæmda­stjórn­ar. 

„Nú er kom­inn tími til að klára þetta mál,” segir hún. Vænt­an­lega komi í ljós á mið­viku­dag hvort hægt verði að halda for­manns­kosn­ingu í vor eða í haust í tengslum við boð­aðan lands­fund. 

Árni Páll vill vera for­maður áfram

Reglur Sam­fylk­ingar um kjör for­manns með alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu eru ítar­legar. Allir skráð­ir félags­menn flokks­ins sem eru 18 ára eða eldri eru kjör­gengir til for­manns og yfir­lýs­ingu um fram­boð skal skila inn ásamt skrif­legum með­mælum að minnsta kosti 20 skráðra félags­manna úr hverju kjör­dæmi lands­ins. Fram­kvæmda­stjórn ákveður svo hvort atkvæða­greiðsla verði raf­ræn eða atkvæði send í póst­i. 

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar, sagði í síð­ustu viku að hann væri til í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu hvenær sem er og býst ekki við öðru en að hann bjóði sig áfram fram til for­manns. 

Ólína Kjer­úlf Þor­varð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar, er þeirrar skoð­unar að flokk­ur­inn verði að bregð­ast við lélegu fylgi flokks­ins í skoð­ana­könn­unum meðal ann­ars með því að kjósa nýja for­yst­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None